mannlegur harmleikur

Bingi hefur sent fréttastofu Stöðvar 2 sms þar sem segir að stóra fatakaupamálið sé mannlegur harmleikur. Þetta er nokkuð athyglisvert. Hvað á maðurinn við?

Er það mannlegur harmleikur að sagt hafi verið frá fatakaupunum? Að fötin hafi verið keypt? Að logið sé um að fötin hafi verið keypt? Að Guðjón Ólafur fari í fjölmiðla? Að Bingisé að verða uppiskroppa með hnífa í bak Guðjóns? Að Guðjón hafi svikið Binga? Pössuðu fötin kannski ekki?

Mér finnst skýlaus krafa okkar allra að við fáum að vita í hverju þessi mannlegi harmleikur felst, þó ekki væri nema vegna skemmtigildisins.

Leave a Reply