fishy fishy fishy fish…
Mér finnst sjálfsagt að Bobby Fischer fá að hvíla í Þjóðargrafreit Íslendinga. Það er deginum ljósara að allir þeir sem sjálfviljugir gerast í íslenskir ríkisborgarar eiga það skilið. Þá held ég að það ætti að veita honum fálkaorðuna að honum látnum, sem er víst núna, fyrir að hafa umgengist RJF hópinn án þess að snappa.
Þá er það heppilegt fyrir ævisöguritara hans að síðasta setning hans hafi verið um fegurð mannlegrar snertingar, en ekki sú sem hann hafði æft: “The World Conspiracy of fucking Zionists finally got me!”
Ennfremur finnst mér sjálfsagt að setta verð reglur um hvað maður verði að eiga flottan bíl til þess að mega lemja krakkana sem henda í hann snjóboltum. Á dögunum var ég á lánsbíl og kastað var í hann snjóbolta, ég mat það svo að 10 ára gömul Toyota væri ekki nógu flott fyrir almennilegar barsmíðar. Bara að ég hefði verið á Lexus, þá hefði þessi 11 ára stelpuskratti þurft að spenna spelkurnar.
January 20th, 2008 at 10:34 pm
Á ekki að gera þennan grafreit að einhverju gríni bara sem fyrst. Illu er best af lokið….schnell!
Og svona í framhjáhlaupi… hvað er emailið hjá þér Kolbeinn?
January 20th, 2008 at 11:22 pm
Ef fólk verður jarðsett í uppréttri stöðu þá er pláss fyrir fleiri.
January 21st, 2008 at 1:07 am
Þessi grafreitur er náttúrulega algjört grín og fer kannski vel á að fischer liggi við hliðina á danska slátraranum.
Þú getur sent á kolbeinn@kaninka.net