af flóknum flækjum
Það hefur verið einstaklega áhugavert að fylgjast með og taka þátt í umræðu á bloggsíðu Egils Helgasonar um múslíma og íslamista. Rauði þráðurinn þar hefur verið sá að Egill, Ágúst Borgþór og skoðanabræður þeirra saka alla þá sem vilja ekki mála heiminn í sömu svarthvítu myndinni og þeir (múslímar jafnt og vondir hryðjuverkamenn) um naívisma - og það sem jafnvel verra er, vinstri mennsku.
Í þeirri umræðu hefur Egill vísað á hverja bókina á fætur annari sem hann hefur fundið á Amazon, vísað til fólks úti í heimi sem sætt hefur ofsóknum og hlegið að tepruskap ungskálda sem voru ekki til í að samþykkja að birting skopmynda Jyllandsposten hafi verið það sniðugasta í heimi. Egill vísar gjarnan til morðsins á The van Gogh og ofsókna á hendur Ayaan Hirsi Ali máli sínu til stuðnings. Þar var um skelfilegan atburð að ræða þar sem ofsafengin trúarskoðun réði vissulega ferðinni.
Nú búast menn við miklum óeirðum í kjölfar nýrrar hollenskrar heimildamyndar, að þessu sinni eftir hægri sinnaðan hollenskan þingmann. Nú ber hins vegar svo við að Hirsi Ali er ekki fylgjandi því að þessi mynd verði sýnd - kallar hana óþarfa ögrun.
Nákvæmlega það - óþörf ögrun - er það sem margir kölluðu birtingar á myndunum í Jyllandsposten á sínum tíma. Og Egill blés og másaði yfir tepruskap og aðför að máfrelsi og vitnaði til títtnefndar Hirsi Ali. Gaman verður að sjá hvernig Egill tekst á við þennan nýja veruleika; að fólk geti viðurkennt fleiri en eina hlið á hverju máli, jafnvel þótt það sjálft sæti ofsóknum af hendi öfgamanna.
January 21st, 2008 at 11:31 pm
Eru ekki allir bara sáttir, svo framarlega sem ekki er verið að drepa mann og annan og kveikja í húsum út af þessum skoðanaskiptum?