Archive for November, 2007

morgunverkin

Saturday, November 3rd, 2007

Þau eru misjöfn morgunverkin. Í gærmorgun var ég mættur klukkan níu á Hvanneyri að taka viðtal við næsta framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, fór þaðan upp í Bæjarsveit að taka viðtal við stórskemmtilegan kall sem er með söfnunadellu og mátti svo haska mér til Reykjavíkur til að ræða við nýjan forstjóra Símans.

Í morgun safnaði ég bjórflöskum og -dósum í fjóra kúffulla haldapoka, sígarettupökkum og öðru rusli í fullan haldapoka, strauk af og skúraði og bölvaði bjórinnflytjendum, gestum sem hella niður, fólki sem drepur í sígarettum í bjórflöskum og ýmsu fleiru lauslegu.

En mikið var gaman á Keine í gær og gestirnir ekki af verri endanum.

léleg borgarstjórn

Thursday, November 1st, 2007

Mikið rosalega finnst mér borgastjórn léleg að láta eins og ráðstefna vopnaframleiðenda hér komi henni ekki við. Nú finnst mér reyndar að hún komi borgarstjórn ekkert við, ekki frekar en aðrar ráðstefnur hér. Ég er ekki á því að hið opinbera eigi að ákveða hverjir komi til Reykavíkur og hverjir ekki.

Það er hins vegar ömurlegt að sama fólkið og vildi stöðva menn við borgarmörkinsem ætluðu að funda um klám og ofbeldi á konum, láti eins og þetta komi því ekki við. Borgarstjóri staffírugur talaði um siðferðislega skyldu borgarstjórnar og allir flokkar sögðu já og amen, við viljum stýr því hverjir koma til Reykjavíkur og hverjir ekki.

Rétt er að taka það fram að varla er til ömurlegri viðburður en klámráðstefna þar sem menn ræða það hvernig þeir eigi að græða sem mesta peninga með því að níðast á konum. Nema kannski ef væri þegar menn ræða það hvernig þeir eigi að græða sem mesta peninga á því að drepa konur, börn og menn. Það eru vopnaframleiðendurnir einmitt að gera.

Fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í borgarstjórn ættu að sjá sóma sinn í því að mótmæla þessu. Ekki að fela sig á bak við einhver tæknikratarök um markmið ráðstefnunnar. Það er bara aumt.