og gísli marteinn líka

Einu sinni var Gísli Marteinn í stjórnarandstöðu í borgarstjórn. Þá hélt hann innblásnar ræður um þá djöfla í mannsmynd sem ofsóttu eigendur einkabíla með því að punga út formúum í strætó, hækka stöðumælagjöld og hreyfa við þeirri hugmynd að kannski ættu ekki að vera ókeypis bílastæði við háskóla og framhaldsskóla.

Síðan fór Gísli Marteinn í meirihluta. Þá hefur hann sest niður með embættismönnum sem hafa sýnt honum tölur, skýrslur og bent honum á staðreyndir. Þá hefur runnið upp ljós fyrir unga frjálshyggjudrengnum. Síðan þá hefur hann breytt kúrs í fjölda mála og talar nú fyrir málum sem hann sjálfur hefði hrópað niður sem forsjárhyggju kommúnista fyrir tveimur, þremur árum. En það er gott að hann hefur að einhverju leyti vitkast.

Hann er orðinn svo mikill forsjársinni að þegar hann er spurður að því hvers vegna nemar í tónlistarskólum fái ekki einnig frítt í strætó þá svarar hann: “Við förum bara nákvæmlega eftir skilgreiningu menntamálaráðuneytisins á því hvað er menntaskóli og háskóli. Það er auðvitað fjöldinn allur af öðrum skólum í borginni en við notumst við þessa skilgreiningu.”

Hvað er að heyra! Getur frjálshyggjupostulinn ekki unnið eftir neinu nema skilgreiningum ráðuneyta? Þurfa embættismenn ríkisins að skilgreina hluti í bak og fyrir til að ungi sjálfstæðismaðurinn geti unnið eftir þeim?

Gísla finnst sjálfsagt að nemar í öðrum skólum ættu einnig að fá frítt í strætó. Hann bara getur ekki orðið við því af því að skilgreiningar ráðuneytismanna gera ekki ráð fyrir því. Ef Gísli Marteinn hefði verið í stjórnarandstöðu og R-listamaður hefði látið þetta út úr sér þá hefði frjálshyggjumaðurinn sagt:

Þetta snýst um réttlætismál en ekki skilgreiningar ríkisvaldsins. Fólk hefur frelsi til að velja skóla og það er boðið upp á þær leiðir að vera í skólum sem rúmast ekki innan skilgreininga ráðuneytisins. Það lýsir forsjárhyggju borgaryfirvalda að brjóta á rétti fólks sem velur að fara aðrar leiðir. Frelsi í menntun á ekki að hafa áhrif á það hvort fólk greiðir í strætó eða ekki.

Og Stjórnarandstöðu-Gísli hefði haft rétt fyrir sér.

3 Responses to “og gísli marteinn líka”

  1. Davíð Þór Says:

    Heyr, heyr!

  2. Haffi Says:

    Nákvæmlega

  3. Silja Ingólfs Says:

    Mér finnst þú ættir að skrifa oftar. Það er gaman.

Leave a Reply