hinn víðsýni bingi
Björn Ingi Hrafnsson er með eindæmum víðsýnn maður. Það hefur hann ítrekað sýnt og nú síðast á heimasíðu sinni í dag. Þar barmar hann sér yfir því að snúið sé út úr fyrir honum á hallærislegan hátt þegar kemur að umræðu um ríkið í Austurstræti. Til að fyrirbyggja allan misskilning áréttar Bingi skoðun sína. Hún er þessi:
Hvað varðar miðborgarbraginn á daginn, er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja að ógæfusamir einstaklingar geta orðið æði áberandi í Austurstræti og á Austurvelli, einkum á góðviðrisdögum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru margir þessara einstaklinga sestir á bekki í Austurvelli snemma á morgnana og bíða þess að verslun ÁTVR opni á morgnana, svo þeir geti keypt kaldan bjór í stykkjatali á um 150 kr. stykkið. Með því að öngla saman fyrir nokkrum slíkum dósum geta þeir setið að drykkju allan daginn úti undir berum himni í miðborginni og spurningin er hvort það sé miðborgarbragur sem Fréttablaðið telur ákjósanlegan?
Þarna þykist kappinn hafa náð góðu höggi á ritstjórn Fréttablaðsins, en það er einmitt undan hallærislegum útúrsnúningi hennar á góðum og gildum skoðunum forseta borgarstjórnar sem Bingi kvartar.
Já það er ekki nema von að hann spyrji að því hvort við viljum hafa róna og ógæfumenn lepjandi bjór á Austurvelli. Það vita allir að þar eru þeir eingöngu vegna þess að ríkið þar selur kaldan bjór. Enginn róni með snefil af sjálfsvirðingu mundi lepja volgan bjór á bekk niðr´í bæ. Óekki.
Áður en ríkið opnaði og hóf að kæla bjórinn kom það að vísu fyrir að einn og einn maður sást á Austurvelli sem dreypti á kogaraglasi eða kökudropum úr Draumnum. Það er hins vegar mun dannaðra en þeir sem lepja bjórinn og ekki nema von að forseti borgarstjórnar skuli vilja hverfa aftur til þeirra tíma. Hvað hafa rónar líka að gera við kaldan bjór? Opinber stefna borgaryfirvalda er eðlilega sú að þeir sem ekki eigi ísskáp eigi ekki að drekka kaldan bjór. Og er það vel.
Bingi hefur hins vegar enga skoðun á því hvernig hægt er að aðstoða það ógæfufólk sem hýrist með kaldan bjór í hendi á austurvellskum bekkjum. Borgaryfirvöld sjá ekki sóma sinn í því að veita þessu fólki húsaskjól og þarf það því að hýrast undir bekkjum og inni í runnum víðsvegar um borgina. En kaldan bjór skal það ekki fá! Ekki á vakt Binga.
August 17th, 2007 at 8:32 pm
Þessi hreinleika umræða sem ungu athafnaskáldin í borgarstjórn stýra er afar merkilegt fyrirbrigði. Fólk á jaðrinum það er utangarðsfólk og dýr sem aldrei myndu fá að taka þátt í keppninni um “þjóðardýrið” - yrði hún haldi - virðast vera endalaus uppspretta fyrir þessa ungu, fögru og þróttmikklu menn eins og Binga og Gísla Martein. Ekkert má trufla augað eða misbjóða fegðurðarskyni þeirra félaga og því skulum við senda útigangsliðið út í úthverfin þar sem hvort eð er er ekkert nema útlendingar og íslenskt pakk og svo skjótum við mávana, flæmum hrafinn út í sveit, hringjum í kóngulóamanninn til að gera út af við óæskilegar kóngulær á húsum, og toppum svo þetta með því að fá geitungabanann í heimsókn til að sjá til þess að þau óargadýr ónáðni nú ekki sæta fjölskyldufólkið sem kemur niður á hinn fagra og hreina Austurvöll um helgar og á hátíðisdögum til að njóta þeirra einstæðu fegurðar sem þar býr. -
August 17th, 2007 at 8:49 pm
Fyrr í dag hélt ég svotil orðrétt sömu ræðu og Kolbeinn um þetta mál. Á ég að fara að leita að hlerunartækjum á heimilinu :p
Eða ætli sé kannski rökréttara að ætla að þetta sé það sem flýgur í gegnum huga flests eðlilegs fólk þegar það heyrir af þessu máli …