vitur eftir á

Nú er Tony Blair orðinn sáttasemjari á milli Palestínumanna og Ísraela. Það þykir hæfa að fá mann sem annar samningsaðilinn treystir ekki tommu til að miðla málum. Og Tony er ekki lengi að finna lausn á málinu. Strax á fyrsta degi í nýja djobbinu gaf hann út að hann sæi leið út úr vandanum. Já Tony sá það í hendi sér að það væri hægt að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs og það sem meira er gaf í skyn að hann vissi upp á hár hvernig ætti að fara að því.

Verst að hann áttaði sig ekki á þessu á meðan hann var forsætisráðherra Bretlands og það skipti aksjúallí máli hvað hann sagði. Ekki núna þegar hann er sáttasemjari sem enginn þarf að hlusta á frekar en aðra slíka.

2 Responses to “vitur eftir á”

  1. Birkir Stagedive Says:

    Áfram Tony Blair!!

  2. Silja Ingólfs Says:

    Tony kallinn er líka svo svakalega klár að hann neitar að hafa Hamas með. Það er auðvitað snilld að útiloka samtök sem stór hluti Palestínumanna kaus í síðustu kosningum.
    Hann hefur ekkert vitrast við að hætta í vinnunni sinni.

Leave a Reply