kolefnisjöfnun
Nú maður getur kolefnisjafnað sig með því að borga ekstra mikið fyrir reykspúandi jeppann sinn og nokkrum trjám verður plantað. Hvað þá með þá sem hafa plantað þúsundum, ef ekki tugþúsundum trjáa? Yfirmanni mínum telst til að hann hafi plantað um 30 þúsund trjám. Á hann þá ekki mengunarkvóta inni? Getur hann ekki keyrt mengandi bíla án nokkurs samviskubits, jafnvel fengið greitt fyrir það?
Kannski hann geti stofnað pínlulítið álver í Reykholtsdalnum þar sem hann er í trjárækt. Hann gæti framleitt 3-4 tonn á ári og selt á sveitamarkaðnum. Þannig getur hann verið sæll, glaður og kolefnisjafnaður þegar að æðsta degi kemur.
July 13th, 2007 at 11:12 pm
Þetta er vissulega dálítið skondið átak og gróskumikil umræða kringum það með tilheyrandi ranglætisrunnum og tvískinnungstrjám. En það má nú samt alveg gefa bílaumboðum og -eigendum smávegis kredit fyrir þó þessar trjáhríslur sem verður plantað fyrir þeirra tilstilli. Hænuskref eru líka skref…
Annars eru öll þessi góðverk sem fólk (og fyrirtæki) stærir sig af í sífellu ósköp ámátleg. Í dag virðist fólk ekki geta álpast til að breyta rétt (í tilvikum þar sem margir aðrir hefðu og hafa breytt rangt) án þess að blogga um það. Þetta er þreytandi og siðlítill ávani. Mjög ókúl.
July 13th, 2007 at 11:13 pm
Úbbs! Þetta leit ekki vel út… þessi síðari málsgrein mín í sníkjublogginu. Það skal tekið fram að ég veit ENGIN dæmi um það, elsku Kolli minn, að þú hafir fallið í þessa gryfju!
July 14th, 2007 at 7:15 pm
Hahaha! Ég skal reyna að taka þetta ekki til mín Stebbi!