ekki ofbeldi!!!!!!

Nú er ég ekki löglærður maður en getur þetta staðist?

 
Ef byggt er á frásögn X af því sem gerðist eftir orðaskipti þeirra inni á snyrtingunni lítur dómurinn svo á, að það að ákærði ýtti X inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf, geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga, eins og það hugtak hefur verið skýrt í refsirétti og í langri dómaframkvæmd.  Nægir þetta eitt til þess að ákærði verði sýknaður af ákærunni.

 Hlutrænt séð skoðast það ekki ofbeldi að gera þetta gegn vilja hennar? Hvað er í gangi?

One Response to “ekki ofbeldi!!!!!!”

  1. SHH Says:

    Snýst þetta ekki aðallega um að lögin eru of lin og gefa einfaldlega ekki færi á að sakfella í þessu tilviki (og eru þar af leiðandi vitlaus — sem vitaskuld þarf að lagfæra), frekar en að umræddir dómarar séu eindrægir stuðningsmenn ofbeldismanna og nauðgara? Mig rámar í að umræddur dómur hafi verið fjölskipaður og hvaðeina. Ásamt því sem viðkomandi var álitinn svo sekur af yfirvöldum og svo mikil flóttahætta yfirvofandi vegna erlends þjóðernis hans að hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá handtöku stuttu eftir atburðinn.

Leave a Reply