Archive for January, 2007

ljóðalestur

Thursday, January 11th, 2007

Nú er ég búinn í því sem kallað er staðlota hjá Kennaraháskólanum. Það var að mörgu leyti ágætt þó ég verði að játa að ýmsu hafi ég kynnst í íslenskunni í Háskólanum. Í gær vorum við t.d. látin lesa ljóð og endursegja þjóðsögu. Ég var pínulítið efins um þetta áður en til kastanna kom, en að sjálfsögðu verða kennarar að kunna að fara með texta þannig að hann veki áhuga fólks. Það eru hins vegar takmörk fyrir því hvað er gaman að því að hlusta á 10 skólafélaga þína endurtaka ljóð aftur og aftur þangað til kennarinn var sáttur.

Ég sat hins vegar ekki iðjulaus heldur hripaði niður þau skáld sem nemendur völdu til að lesa eftir. Sjálfur las ég Heimurinn og ég eftir Stein Steinarr, einfaldlega af því að ég þekki það vel. Ekki veit ég hvort listinn yfir skáldin segir okkur eitthvað, en nemendur eru á aldrinum 25 - 50.

Steinn Steinarr (annar en ég)

Björn í Sauðlauksdal

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi

Toshiki Toma

Ólafur Haukur Símonarson

Jónas Hallgrímsson

Pétur Gunnarsson

Megas

Kristján frá Djúpalæk

Hannes Hafstein

þessi færsla er í boði…

Thursday, January 11th, 2007

Er það bara ég eða er eitthvað krípí við það að horfa á þátt um kraftaverkalækna sem lækna næstum hvað sem er með rættum aðferjum og lyfjum og fá reglulega skilaboð um að viðkomandi þáttur sé í boð Lyfju?

innherjaviðskipti á íslandi

Tuesday, January 9th, 2007

Ég var að ræða við félaga minn sem vinnur í fjármagnsgeiranum og hann sagði mér ansi góða sögu sem er um margt lýsandi fyrir íslenskan hlutabréfamarkað. Hingað kom s.s. erlendur sérfræðingur í hlutabréfamarkaði, maður sem hefur verið að rannsaka gegnsæi á markaði og innherjaviðskipti. Hann stúderaði íslenskan hlutabréfamarkað og kvað síðan upp úr með það að í rauninni ætti hann einungis að vera opinn tvo daga á ári; eftir ársuppgjör og eftir hálfsársuppgjör. Markaðurinn væri svo lítill hér og allir tengdir á einhvern hátt að þetta væru einu dagarnir þar sem allir sætu við sama borð. Vegna tengsla væri í raun um nk. innherjaviðskipti að ræða nema þessa tvo daga.

Þetta finnst mér fyndið. Í allri þessari hlutabréfavæðingu samfélagsins er ágætt að vera kippt niður á jörðina og láta setja hlutina í samhengi fyrir sig. Mér er til efs að nokkursstaðar í heimi sé samfélagið jafngegnsýrt af hlutabréfaumræðu og hér á landi. Endalausar fréttir og umræður um gengi hlutabréfa tröllríða fjölmiðlum og hvenær ætlar fréttastofa Rúv að hætt að lesa það upp í kvöldfréttatíma sínum. Heldur fólk þar á bæ virkilega að einhver bíði eftir þessum tölum þangað til klukkan hálfátta? Þeir sem hafa áhuga á futsji og hvað þetta heitir eru búnir að kanna hreyfingar dagsins oft þegar Bogi kveður upp úr með þær, hinum er alveg sama.

á morgun…

Wednesday, January 3rd, 2007

…sest ég á skólabekk í fyrsta skiptið síðan haustið 1997. Næstum 10 ár! Magnað.

sérkennileg myndbirting

Wednesday, January 3rd, 2007

Nú hefur töluvert verið rætt og ritað um það viðbjóðslega sjónarspil sem aftaka Sadda Hussein var. Aftökur eru vissulega alltaf viðbjóðslegar, en þessi þó alveg sérstaklega með myndatökum og háðsglósum. Áhorf á aftöku er sérdeilis ógeðfellt - ég hef t.d. aldrei skilið það að gert sé ráð fyrir áhorfendum á aftökur í Bandaríkjunum. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna allar fréttastofur hérlendis (og líklega mun fleiri um allan heim sem ég hef ekki séð) keppast við að birta þessar myndir. Ábúðarfullir þulir Rúv og Stöðvar 2 segja okkur það að myndataka við aftökur samræmist ekki hinum og þessum sáttmálanum. Yfir skjáinn rúlla síðan myndskeið - sum aftur og aftur - sem sýna Saddam rétt fyrir aftökuna. Vissulega hefur sjálf dauðastundin ekki verið sýnd, en er það ekki bitamunur en ekki fjár? Og hver ný frétt um að myndatakan og birting myndanna veki upp deilur kallar á aðra birtingu á myndskeiðunum. Sérkennilegt fréttamat.