hall & murphy
Eitt af því sem Palli á er X-box tölva með sjittlód af sjónvarpsþáttum og bíómyndum inni á. Ein þeirra mynda er Coming to America. Hún minnir mann á að einu sinni var Eddy Murphy mjög fyndinn, en síðan gerðist eitthvað. En hvað varð um Arsenio Hall? Var hann ekki þáttastjórnandi og seleb? Hann er assgoti flotur í þessari mynd, leikur ýmis hlutverk og góður í þeim öllum, bestur þó sem klerkurinn. Hvarf hann bara eftir þetta eða hvað?
January 28th, 2007 at 5:29 pm
Síðasta sem ég sá af honum var hann með reglulegt (og lélegt) standup hjá Jay Leno.
January 31st, 2007 at 2:06 am
Arsenio Hall fékk sinn eigin sjónvarpsþátt sem gekk vel en hætti svo með hann. Er einunigs í uppistandi núna og kíkir reglulega við hjá Jay Leno. Verð samt að vera ósammála AV þar sem að mér finnst hann virkilega fyndinn. En svona er smekkur manna misjafn. Hérna er tengill á hann inn á wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/Arsenio_Hall
kveðja
Pétur Mikli.
February 2nd, 2007 at 9:19 pm
Just let your soul glo, just let your SOOOOUL GLOOOOOOOOOO!!!!!