hinn víðsýni Maclean
Heima hjá Palla fann ég gamla bók eftir Alistair Maclean. Ég las töluvert af þessum bókum þegar ég var unglingur en fékk svo leið á þeim. Ég var búinn að gleyma hve ótrúleg karlremba birtist í þessum bókum. Konurnar eru allar fallegar, vitlausar og gjörsamlega hjálparlausar. Þessi setning úr bókinni, Til móts við gullskipið, er gott dæmi um víðsýni skotans knáa.
En hvað sem þessu viðtæki leið, gat grunur okkar ekki fallið á ungfrú Harcourt. Við vissum, að hana skorti áræði og greind til slíkra verka. Og satt að segja - hún var allt of falleg til þess.
January 26th, 2007 at 2:02 pm
Amen! þakka þér fyrir að minna mig á hvað þessi æskuhetja mín var í raun hræðileg. - En hvernig skyldi hann standast samaburð við rithetjur númans? Hvernig eru annars konurnar hjá Dan Brown?
January 29th, 2007 at 11:14 am
Konurnar hans Dan Brown eru klárar með eindemum. Spurningin er af hverju hlutverk konunnar í DaVinci Code myndinni var gert að engu.