flutningar
Nú er Palli farinn til Tælands ásamt með Hönnu. Það er gott í tvennum skiningi; Fyrir það fyrsta skemmta þau sér væntanlega konunglega þar eystra við heilsusamlegt líferni og í öðru lagi leigi ég íbúðina hans á meðan hann er í burtu. Ég er því kominn í Vesturbæinn og verð hér fram á haust. Er það vel.