klængur sniðugi
Það er hálfankannanlegt að blogga um jóladagatal sjónvarpsins nú í janúar en hvað um það. Kjarri félagi minn, sem nú er í Liverpool, heldur nenfilega úti stórskemmtilegu bloggi Á frívaktinni og þar heitir kommentakerfið Klængur sniðugi. Það varð til þess að ég fór að rifja upp þessa stórskemmtilegu þætti, sem ég held að hafi verið endursýndir í fyrra eða hitteðfyrra.
Ég held að þetta sé besta jóladagatal sem ég hef séð og ég hef séð þau öll síðustu átta ár og einhver fyrir það. Það var alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast, fyndinn texti og sniðugir karakterar við skemmtilegar aðstæður - allt eins og á það á að vera. Þeir Davíð Þór og Steinn Ármann hittu þarna sannarlega á réttar nótur og mættu gera meira af þessu.
Líkur þar með þessari ferð eftir þjóðvegi minninganna.