peningar
Við feðgar vorum á rölti um bæinn í gær eftir barnaafmæli. Röltum m.a. á sögusýningu Landsbankans og aðstandendur fá prik fyrir hana. Við vorum báðir hrifnir og Óttar stóð lengi og virti líkanið af miðbæjarbrunanum fyrir sér. Eins fannst okkur gömlu tölvurnar áhugaverðar sem og bankastarfsmaðurinn í Bankastrætinu með umferðarnið þarsíðustu aldamóta fyrir utan gluggann. Þá var öllum gefið eitthvað, molar og slikkerí, og sagnfræðingurinn fékk sögu bankans sem enn hefur nú ekki verið opnuð.
Á leiðinni heim komum við við í búð og keyptum í matinn. Þegar við gengum síðan fram hjá gamla bankahúsinu í Bankastræti vildi Óttar ræða peningamál við mig. Í stuttu máli skildi hann ekki þörfina fyrir peninga. Af hverju í ósköpunum þessir litlu miðar skiptu einhverju máli. Ég, mótaður af kapítalísku samfélagi, týndi til ókosti vöruskipta, vesen að fara í búðir þannig o.s.frv. Hann var hins vegar ekki að hugsa um vöruskipti, hann vildi einfaldlega að allt væri ókeypis.
Hvernig sem við ræddum þetta þá tókst mér ekki að útskýra fyrir honum, eða mér, af hverju peningar þyrftu að vera til. Allt væri bara ókeypis og allir næðu í það sem þeir þörfnuðust. Ég spurði hann hvort hann héldi ekki að einhverjir tækju meira en aðrir og hvort nóg yrði til af öllu. Hann hafði litlar áhyggjur af því, ef einhver vildi svindla yrði hann að eiga það við samvisku sína. Þá taldi hann af og frá að menn myndu leggjast í leti og ómennsku fyrst þeir þyrftu ekkert að vinna og allt væri ókeypis. Hver mundi nenna því? Og auðvitað búa menn til það sem þeir þurfa til að lifa, annars deyja þeir! Og öllum líður vel!
Æ já, væri það ekki bara fínt?
January 15th, 2007 at 5:28 pm
Spurning hvort þið feðgarnir stofnið ekki nýtt stjórnmálaafl, ég sting upp á nafninu “Borga, nei, nei!!!”
January 16th, 2007 at 3:19 am
Og svei! Hvar læt ég skrá mig? Þarf ég að borga félagsgjöld? Ég borga engin töðugjöld.
January 18th, 2007 at 4:28 pm
peningar = ávísun á tíma annarra
bankar = óþarfa og ógeðslegir milliliðir
óttar = klár strákur
January 18th, 2007 at 5:00 pm
Ég predikaði þessa hugmynd fyrir öllum sem ég hitti þegar ég var 14-16 ára. Enn þann dag í dag sé ég henni ekkert til foráttu.