tímamót hvað?
Hún var sérkennileg fréttin á forsíðu Fréttablaðsins um að stóraukin framlög til Háskóla Íslans væru Tímamót í íslenskri skólasögu. Ekki verður annað séð en að sá skilningur komi frá blaðamanni, í það minnsta fann ég hvergi að vitnað væri til ummæla einhvers með þessu. Nú skal ég verða síðasti maðurinn til að kvarta yfir auknum útgjöldum til Háskóla Íslands. Ég verð hins vegar að játa það að mér finnst að þessi ummæli séu til merkis um það að stjórnvöldum hefur tekist að prógrammera hugsun okkar um menntamál meira en góðu hófu gegnir.
Staðreyndin er nefnilega sú að HÍ hefur verið í viðvarandi fjársvelti undanfarin ár, ef ekki áratugi. Þetta hafa allir rektorar skólans viðurkennt og barátta stúdenta hefur að mestu staðið um aukin fjárframlög. Margar skorir, t.a.m. íslenskuskor, búa við það að geta ekki ráðið í stöður sem losna og ég veit að víða hafa verið lausar stöður í fjölda ára sem ekki er til fjárveiting fyrir að ráða í.
Ríkisvaldið hefur s.s. haldið skólanum í fjárhagslegri spennitreyju um langa hríð. Nú á að auka útgjöldin til skólans og er það hið besta mál. En að líta á það sem tímamót í íslenskri skólasögu hlýtur að vera dálítið vel í látið. Það eru kannski tímamót í skilningi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks á menntun og mikilvægi hennar og stöðu Háskóla Íslands. En þeir sem muna aftur fyrir 1991 muna þá tíð að HÍ kvartaði ekkert sérstaklega mikið yfir því að þar vantaði mikla fjármuni. Vissulega kom það fyrir, en viðvarandi fjársvelti er ekki hægt að ræða um fyrr en eftir að Sjálfstæðisflokkurinn tók við völdum.
——
Prik dagsins fær Þórarinn Þórarinsson fyrir ummæli í dómi um nýja mynd Mel Gibson: Hér mætast Tinnabókin Fangarnir í Sólhofinu og fyrsta Rambómyndin í hörkuspennandi uppgjöri einstaklingsins við ofureffli andstæðingana. Það er náttúrulega bara snilld að vísa til Tinnabókar í dómi um nýja Hollywoodmynd.