fordómafullt ungíhald

Ég var að lesa grein Höllu Gunnarsdóttur um tímaritið Þjóðmál á síðunni hennar hér á kaninkunni. Halla hefur lag á að orða hlutina skýrt og setja þá í lógískt samhengi og gerir hún það einnig hér. Svo mjög reyndar, að sjálfur Björn Bjarnason hefur gagnrýnt hana fyrir, en það er öruggt merki um að Halla hafi hitt naglann á höfuðið. Einn þeirra sem Halla fjallar um er Hjörtur J. Guðmundsson, en sá ritar í Þjóðmál um innflytjendamál. Um Hjört þennan vissi ég ekkert fyrir lestur greinar Höllu, en vegan töfra internetsins veit ég eitthvað meira núna. T.a.m. að um hann er til síða á Wikipediu svo hann hlýtur að eiga nokkuð undir sér - nema hann hafi kannski sjálfur gert síðuna?

Einnig veit ég að hann heldur úti bloggi. Þar má glöggt sjá skoðanir hans á ýmsum málum, sérstaklega er honum þó umhugað um innflytjendamál. Sem víðsýnn maður hefur hann þó að sjálfsögðu áhuga á ýmsum málum og eitt af því eru ráðningamál Kvennaathvarfsins. Það vakti s.s. athygli Hjartar að þegar auglýst var eftir starfskrafti þar var talað um vaktstýru. Þykir Hirti þetta mikið réttlætismál og ákallar feminista þessa lands til að mótmæla með sér þessum gjörningi. Hvernig stendur á því að Kvennaathvarfið er ekki meira jafnréttissinnað en þetta?

Ég get vel ímyndað mér Hjört við að slá inn færsluna. Hann hefur hallað sér aftur, glott með sjálfum sér og hugsað jæja þarna lét ég þær heyra það, hvað segja þær nú? Ánægður með sína pólitísku keilufellingu. En mikið ber þessi einfalda færsla hans Hjartar vott um mikla fordóma.

Látum nú vera að Hjörtur getur ekki ímyndað sé að á stað þar sem konur koma eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi eiginMANNA sinna, sé kannski heppilegra að starfsfólkið sé konur. Tekið skal fram að ég veit ekki hvort þetta er hugsunin hjá Kvennaathvarfinu, en það kæmi mér ekkert á óvart. Mundi ég hins vegar fullyrða það væri ég að falla í sömu gryfju og Hjörtur sjálfur, nefninlega þá að geta ekki ímyndað mér að karlar geti sinnt störfum sem heita kvenmiðuðu heiti.

Um þetta hef ég fjallað áður hér, en það virðist vera að ekki þurfi margir karlar að gegna slíkum störfum áður en til verða karlmmyndir af starfsheitinum - sbr. flugfreyr. Í þessu felst ekki áfellisdómur yfir hinum nýju heitum sem sum eru ágæt, eingöngu pæling um það hvers vegna því er ekki öfugt farið - konur með starfsheiti kennd við karlmenn verði til þess að þau kvenkennist.

Þetta var hins vegar útúrdúr. Það væri samt áhugavert að vita hvort Hjörtur hefði hugsað eins ef heitið hefði verið karlkennt. Ef auglýst er eftir umsjónarmanni fasteigna, starfsmanni í búð, vaktmanni, já eða vaktstjóra - er Hjörtur þá jafnviss um að enginn geti sótt um nema karlmenn, líkt og hann var viss um að enginn nema kona gæti gegnt starfi vaktstýru?

Jæja þá hef ég þusað nóg yfir þessu. Svona vitleysa verðskuldar ekki heila færslu, en vissulega hef ég fengið útrás.

2 Responses to “fordómafullt ungíhald”

  1. Halla Says:

    Er vaktstýra ekki bara starfsheiti? ;)

  2. kolbeinn Says:

    Jú það var nú einmitt það sem ég var að ýja að. Fordómafullur hugur ungíhaldsins ræður bara ekki við þá hugsun að karlmenn geti borið kvenkennt starfsheiti.

Leave a Reply