lýðræðisást Bandaríkjanna

Jæja þá hefur það gerst á ný. Alltaf skal það gerast að þegar maður heldur að kosningakerfi Bandaríkjanna geti ekki verið fíflalegra, afsanna þeir það með bravúr. Nýjasta dæmið eru veikindi Tim Johnsons öldungardeildarþingmanns demókrata. Hve heimskulegt getur þetta kerfi verið? Vilji fólksins í S-Dakóta var skýr, við viljum demókrata. Nú gerist það að maðurinn veikist alvarlega og þá snýst þetta ekki lengur um vilja fólksins, heldur um vilja ríkisstjóra S-Dakóta - sem bæðevei er Repúblikani.

Ég held að það sé kominn tími til að menn horfist í augu við það að Bandaríkin eru fráleitt lýðræðisríki. Um það vitna fáránlegar reglur, talningar í forsetakosningum, markvissar aðgerðir til að halda lituðum frá kjörstöðum, skráning til að fá að kjósa gegn gjaldi o.fl. o.fl.

Íslenskir ráðamenn ættu því að fara varlega í að styðja útbreiðslu lýðræðis undir bandarískum byssustingjum. Fyrst ættu menn að koma á lýðræði heima fyrir áður en þeir fara að breiða boðskapinn út. Bandaríkin eru eins og ágengur Herballife sölumaður sem hefur enga trú á eigin vöru og notar hana ekki.

One Response to “lýðræðisást Bandaríkjanna”

  1. Davíð Þór Says:

    Vel mælt!

Leave a Reply