bókasölulisti 1979 - 2005

Lesendur eru varaðir við, en bloggið sem hér fer á eftir er mjög nördalegt og eingöngu ætlað þeim sem áhuga hafa á bókum.

Mörgum hefur orðið tíðrætt um ástand bókaþjóðarinnar miklu sem Íslendingar eru sagðir vera. Bæði er það að sumir vilja meina að lestur bóka hafi minnkað sem og það að gæði bóka séu minni en áður var. Í ljósi því síðarnefnda er gaman að skoða þær bækur sem vinsælastar hafa verið hér á landi. Notast er við sölulista yfir vinsælustu bækurnar sem birtust í Dagblaðinu frá 1979 til og með 1994. Árin 1980 og 1984 var ekki birtur eiginilegur listi heldur vinsælir titlar samkvæmt viðtölum við starfsfólk bókaverslana. Frá 1995 er notast við samantektir Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Undirritaður fann hins vegar enga slíka yfir árið 2001 (á heimasíðu stofnunarinnar er sami listi yfir það ár og 2005) og er því notast við lista frá Pennanum. Bókin Ísland í aldanna rás 1976-2000 kom hér að góðum notum.

Hér eru einungis nefndar fimm vinsælustu bækurnar hvert ár. Ekki verður farið út í miklar pælingar að þessu sinni um hvað listinn getur sagt okkur, en óneitanlega vekur athygli hve ævisögur eru vinsælar. Höfundar virðast einnig skjóta upp kollinum og vera vinsælir nokkur ár í röð, komist þeir á annað borð á listann. Sigurvegarinn hlýtur hins vegar að teljast Alistair MacLean, en hann, og útgefendur með hina ýmsu höfunda sér til fulltingis eftir dauða kappans, er að finna 11 sinnum á þessum listum.

1979
1 Undir kalstjörnu – Sigurður A. Magnússon
2 Ég sprengi klukkan 10 – Alistair MacLean
3 Hvunndagshetjan – Auður Haralds
4 Fílaspor – Hammond Innes
5 Dómsdagur – Guðmundur Daníelsson

1980
Grikklandsár – Halldór Laxness
Vítisveiran – Alistair MacLean
Valdatafl í Valhöll – Anders Hansen og Hreinn Loftsson
Landið þitt Ísland – Steindór Steindórsson og Þorsteinn Jósepsson
Læknamafían – Auður Haralds

1981
1 Gunnar Thoroddsen – samtalsbók Gunnars og Ólafs Ragnarssonar
2 Ólafur Thors: ævi og störf – Matthías Johannessen
3 Skrifað í skýin – Jóhannes Snorrason
4 Háskaför á norðurslóðum – Alistair MacLean
5Lífsjátning: endurminningar Guðmundu Elíasdóttur söngkonu – Ingólfur Margeirsson

1982
1 Æviminningar Kristjáns Sveinssonar augnlæknis – Gylfi Gröndal
2 Dauðafljótið – Alistair MacLean
3 Hverju svarar læknirinn? – Claire Rayner
4 Jólalögin í léttuum útsetningum fyrir píanó – Jón Þórarinsson
5-6 Landið þitt Ísland III – Steindór Steindórsson og Þorsteinn Jósepsson
Albert – Ole Lund Kirkegaard

1983
1 Skæruliðarnir – Alistair MacLean
2 Skrifað í skýin II – Jóhannes Snorrason
3 Eysteinn í eldlínu stjórnmálanna – Vilhjálmur Hjálmarsson
4 Bjarni Benediktsson – Jóhannes Nordal
5 Öldin okkar, minnisverð tíðindi 1971-1975 – Gils Guðmundsson

1984
Á Gljúfrasteini: Edda Andrersdóttir ræðir við Auði Sveinsdóttur Laxness
Ensk-íslensk orðabók

1985
1 Sextán ára í sambúð – Eðvarð Ingólfsson
2 Lífssaga baráttukonu Inga Huld Hákonardóttir rekur feril Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur
3 Guðmundur Kjærnested – Sveinn Sæmundsson
4 Njósnir á hafinu – Alistair MacLean
5 Löglegt en siðlaust – Jón Ormur Halldórsson

1986
1 Líf mitt og gleði, minningar Þuríðar Pálsdóttur söngkonu – Jónína Michaelsdóttir
2 Grámosinn glóir – Thor Vilhjálmsson
3 Svarti riddarinn – Alistair MacLean
4 Alíslensk fyndni – Magnús Óskarsson
5 Saman í hring – Guðrún Helgadóttir

1987
1 Uppgjör konu, endurminningar – Halla Linker
2 Helsprengjan – Alistair MacLean
3 Sænginni yfir minni – Guðrún Helgadóttir
4 Pottþéttur vinur – Eðvarð Ingólfsson
5 Ásta grasalæknir – Atli Magnússon

1988
1 Ein á forsetavakt, dagar í lífi Vigdísar Finnbogadóttur – Steinunn Sigurðardóttir
2 Býr Íslendingur hér? – Garðar Sverrisson
3 Forsetavélinni rænt – John Denis og Alistair MacLean
4 Og þá flaug Hrafninn – Ingvi Hrafn Jónsson
5 Bryndís – Ólína Þorvarðardóttir

1989
1 Sagan sem ekki mátti segja, endurminningar Björns Sv. Björnssonar – Nanna Rögnvaldardóttir
2 Dauðalestin – Alistair MacNeill og Alistair MacLean
3 Ég og lífið. Inga Huld Hákonardóttir ræðir við Guðrúnu Ásmundsdóttur
4 Með fiðring í tánum – Þorgrímur Þráinsson
5 Ég get séð um mig sjálf – Lis Berry

1990
1 Ég hef lifað mér til gamans – Björn á Löngumýri segir frá – Gylfi Gröndal
2 Bubbi – Silja Aðalsteinsdóttir og Ásbjörn Morthens
3 Tár, bros og takkaskór – Þorgrímur Þráinsson
4 Haltu mér – slepptu mér – Eðvarð Ingólfsson
5 Næturverðirnir – Alistair MacLean

1991
1 Lífróður Árna Tryggvasonar leikara – Ingólfur Margeirsson
2 Fyrirgefning syndanna – Ólafur Jóhann Ólafsson
3 Á slóð kolkrabbans – Örnólfur Árnason
4 Mitt er þitt – Þorgrímur Þráinsson
5 Kristján Eldjárn – ævisaga – Gylfi Gröndal

1992
1 Alltaf til í slaginn, lífssigling skipstjóran Sigurðar Þorsteinssonar – Friðrik Erlingsson
2 Lalli ljósastaur – Þorgrímur Þráinsson
3 Bak við bláu augun – Þorgrímur Þráinsson
4 Dansað í háloftunum - Þorsteinn E. Jónsson
5 Seld – Zana Muhsen

1993
1 Spor í myrkri – Þorgrímur Þráinsson
2 Járnkarlinn – Örnólfur Árnason ræðir við Matthías Bjarnason
3 Perlur og steinar, árin með Jökli – Jóhanna Kristjónsdóttir
4 Falsarinn – Björn Th. Björnsson
5 Micheal Jordan – Jack Clary

1994
1 Fólk og firnind, stiklað á Skaftinu – Ómar Ragnarsson
2 Sniglaveislan – Ólafur Jóhann Ólafsson
3 Enn fleiri athuganir Berts – Anders Jacobsson og Sören Olsson
4 Útkall Alfa TF-SIF – Óttar Sveinsson
5 Að elska er að lifa – Hans Kristján Árnason ræðir við Gunnar Dal

1995
1 Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus – John Gary
2 María, konan bak við goðsögnina – Ingólfur Margeirsson
3 Ekkert að þakka – Guðrún Helgadóttir
4 Sex augnablik – Þorgrímur Þráinsson
5 Paula – Isabel Allende

1996
1 Lífskraftur – Séra Pétur og Inga í Laufási – Friðrik Erlingsson
2 Lögmálin sjö um velgengni – Deepak Chopra
3 Benjamín H. J. Eiríksson, í stormum sinnar tíðar – Hannes H. Gissurarson
4 Kökubók Hagkaup[a] – Jóhannes Felixson
5 Z ástarsaga – Vigdís Grímsdóttir

1997
1 Fótspor á himnum – Einar Már Guðmundsson
2 Einar Benediktsson I – Guðjón Friðriksson
3 Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar – Davíð Oddsson
4 Kínverskir skuggar – Oddný Sen
5 Bert og baðstrandargellurnar – Anders Jacobssen og Sören Olsson

1998
1 Áhyggjur Berts – Anders Jacobssen og Sören Olsson
2 Steingrímur Hermannsson – ævisaga I – Dagur B. Eggertsson
3 Aldrei að vita! – Guðrún Helgadóttir
4 Þorvaldur Guðmundsson í Síld og fisk – Gylfi Gröndal
5 Náðuga frúin í Ruzomberok – Jónas Jónasson

1999
1 Harry Potter og viskusteinninn – J. R. Rowling
2 Slóð fiðrildanna – Ólafur Jóhann Ólafsson
3 Útkall í Atlantshafi – Óttar Sveinsson
4 Sagan af bláa hnettinum – Andri Snær Magnason
5 Vandamál Berts - Anders Jacobssen og Sören Olsson

2000
1 Draumar á jörðu – Einar Már Guðmundsson
2 Steinn Steinarr – leit að ævi skálds – Gylfi Gröndal
3 Ísland í aldanna rás – 20. öldin 1900-1950 – Illugi Jökulsson o.fl. [Kolbeinn Óttarsson Proppé tíhíhí]
4 Útkall upp á líf og dauða – Óttar Sveinsson
5 Harry Potter og fanginn frá Azkaban – J. R. Rowling

2001
1. Harry Potter og eldbikarinn – J. K. Rowling
2. Höll minninganna – Ólafur Jóhann Ólafsson
3. Eyðimerkurblómið – Waris Dirie
4. Björg – Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
5. Harry Potter og viskusteinninn – J. K. Rowling

2002
1 Jón Baldvin – Tilhugalíf – Kolbrún Bergþórsdóttir
2 Röddin – Arnaldur Indriðason
3 Sonja – Reynir Traustason
4 Eyðimerkurdögun – Waris Dirie
5 Útkall – Geysir er horfinn – Óttar Sveinsson

2003
1 Bettý – Arnaldur Indriðason
2 Einhvers konar ég – Þráinn Bertelsson
3 Harry Potter og Fönixreglan – J. K. Rowling
4 Ósköpin öll – Flosi Ólafsson
5 Útkall – Árás á Goðafoss – Óttar Sveinsson

2004
1 Kleifarvatn – Arnaldur Indriðason
2 Da Vinci lykillinn – Dan Brown
3 Barn að eilífu – Sigmundur Ernir Rúnarsson
4 Belladonnaskjalið – Ian Caldwell og Dustin Thomason
5 Öðruvísi fjölskylda – Guðrún Helgadóttir

2005
1 Vetrarborgin – Arnaldur Indriðason
2 Lansliðsréttir Hagkaupa: 238 afbragðs uppskriftir – Bjarni Gunnar Kristinsson, Ragnar Ólafsson et.al.
3 Með lífið að láni – Njóttu þess – Jóhann Ingi Gunnarsson og Sæmundur Hafsteinsson
4 Harry Potter og blendingsprinsinn – J. K. Rowling
5 Thorsararnir: Auður – Völd – Örlög – Guðmundur Magnússon

5 Responses to “bókasölulisti 1979 - 2005”

  1. Haffi Says:

    Þetta er ljómandi skemmtileg lesning. Íslendingar voru líklega aldrei bókaþjóð í þeirri merkingu að lesa bara “góðar” bækur. Spenna og landlæg hnýsni um hagi náungans hefur alltaf verið efst, Sturlunga sameinar þetta tvennt t.d. listilega.

  2. Arngrímur Vídalín Says:

    Sæll Kolbeinn!

    Sannarlega er gaman að þessum lista, mig raunar rekur minni til þess að MacNeill þessi sem kláraði allar bækur MacLeans hafi heitið Alastair, til frekari aðgreiningar frá MacLean.

    Talandi um bækur, ég vænti þess að þegar eigirðu eintak af jólabókinni í ár, ellegar er mér bæði ljúft og skylt að selja þér eitt.

  3. kolbeinn Says:

    Auðvitað er það lauk- kór- og hárrétt hjá þér Arngrímur að kauðinn hét Alastair. Ekki hafa menn viljað að menn rugluðu honum saman við McLean sjálfan, eða hvað?

    Varðandi jólabókina í ár þá hef ég ekki keypt mér nýja bók í árafjöld, verandi enda sagnfræðingur. Ég fæ einhverjar í jólagjafir, hinar kaupi ég eftir tvö, þrjú ár þegar fennt hefur yfir umræðu og fyrirfram gefnar skoðanir um þær.

  4. Sævar Says:

    Ansi hefurðu verið lengi aðdáendi “unglingabókanna”. Hófst reyndar lestur þeirra bókmennta orðinn stálpaður en entist fram undir þessa öld. Spennandi.

  5. kolbeinn Says:

    Í ljósi síðasta komments skal það ítrekað að þetta er ekki listi yfir mínar uppáhaldsbækur, heldur listi yfir söluhæstu bækur hvers árs.