Zidane og hetjudýrkun
Það er merkilegt að fylgjast með viðbrögðum fjölmiðla og áhugamanna við hegðan Zidane í úrslitaleiknum. Nú keppist hver um annan þveran við að láta eins og þetta sé algjörlega út úr karakter fyrir Zidane og því hljóti eitthvað mjög sérstakt að hafa gerst. Það er þó staðreynd að Zidane hefur fengið 14 rauð spjöld á ferlinum og m.a. verið rekinn út af í úrslitakeppni HM. Ég vitna í Rob Smyth sem skrifaði um leikinn í beinni í netútgáfu Guardian: He has always had a nasty streak - this is his 14th red card - but this was just ridiculous. Það að láta eins og þetta sé úr karakter fyrir Zidane er náttúrulega bara rugl. Hins vegar er ljóst að menn gera ekki svona að gamni sínu í síðasta leiknum sínum. Ég fullyrði það að allir aðrir leikmenn í heiminum hefðu fengið harkalegri meðferð en Zidane. Vissulega var þetta stór stund á ferli hans, en það afsakar ekki hegðan hans.
Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti sem Zidane skallar einhvern í fótboltaleik. Síðastu leiktíðina hjá Juventus var hann dæmdur í fimm leikja bann fyrir að skalla Jochen Kienz leikmann Hamburger SV. Þetta var í leik í Meistaradeildinni og skipti bannið því miklu máli, enda náði Juventus ekki upp úr riðlakeppninni.
Síðan keppast menn um að velta því fyrir sér hvað Materazzi hafi sagt við Zidane til að láta þennan góða dreng missa stjórn á skapi sínu. Nú er augljóst að eitthvað sagði Ítalinn. Hins vegar er tilhneigin íslenskra íþróttafréttamanna að mála hann sem skúrkinn og Zidane sem óheppilegt fórnarlamb út í hött. Hvað var sagt á milli þeirra er ekkert nema áhugavert sögulegt kúríósitet - það skiptir hins vegar engu máli. Hann má hafa sagt hvað sem er, ekkert réttlætir þessi viðbrögð.
Að því sögðu er hins vegar ekki annað hægt en að hafa samúð með Zidane að missa svona stjórn á sér á þessari stundu, hann getur hins vegar engum kennt um öðrum en sjálfum sér. Ég verð hins vegar að setja spurningamerki við þá staðreynd að búið hafi verið að velja mann mótsins áður en þetta gerðist. Nú munaði ekki mörgum atkvæðum á Zidane og Cannavaro og báðir léku þeir í úrslitaleiknum. Hefði ekki verið eðlilegt að láta þann leik klárast áður en gert var upp á milli manna?
July 11th, 2006 at 10:47 am
Jú það hefði svo sannarlega verið eðlilegt að kjósa mann mótsins eftir leikinn og í raun fáránlegt að svona sé staðið að málum. Það liggur í augum uppi að leikmaður sem gerir svona heimskuleg og afdrifarík mistök í úrslitaleiknum á ekki skilið að vera valinn maður mótsins - og þá horfi ég alveg framhjá þeirri óíþróttamannslegu hegðun sem hann sýndi, það er önnur og lengri saga. Ég hef enga samúð með Zidane fyrir að missa svona stjórn á sér, ekki frekar en ég hef samúð með fíflum sem skalla fólk í miðbæ Reykjavíkur um helgar. Það að maðurinn sé heimsþekktur og þetta gerist í beinni útsendingu skiptir ekki nokkru máli.
July 11th, 2006 at 4:57 pm
Rétt hjá þér. Zidane hefur alltaf verið grófur leikmaður og styður fjöldi rauðra spjalda það. Einnig getur maður ályktað það að hann hafi ósjaldan látið einhvern heyra það í hita leiksins, því er algerlega fáránlegt að gera eitthvað fórnarlamb úr honum.
July 13th, 2006 at 3:53 pm
Það má segja að það sé ákveðin söguleg nauðsyn að Materazzi sé skúrkurinn í þessu máli. Væntingarnar til Zidane voru svo miklar og það var búið að mála upp helgimyndina og menn biðu bara eftir að geta afhjúpað hana í leikslok.
Umræðan endurspeglar þrá eftir hollívúdd endalokum. Við afberum ekki þennan harmleik. Við elskum ZIdane en þekkjum ekki tattóveraða varnarjaxlinn sem hafði heimsmeistaratignina af Zidane. Reyndar þekkjum við týpuna.
Zidane er Baldur. Materazzi er Loki.
July 13th, 2006 at 5:27 pm
Þetta er alveg hárrétt greining hjá Erni Úlfari. Bjarni Guðna hefði verið ánægður með þig.