fangelsuð börn og handteknir hermenn
Ég horfði aldrei þessu vant á kvöldfréttatíma beggja sjónvarpsstöðvanna, NFS og Ríkissjónavarpsins. Í báðum fréttatímum var eðlilega sagt frá nýskeðum atburðum á Gaza þegar palestínskir vígamenn grófu göng undir landamærin, lentu í átökum við ísraelska hermenn og höfðu einn þeirra á brott með sér. Sama brotið var sýnt af Olmert þegar hann hótaði öllu illu og sagði enga óhulta. Síðan lauk báðum fréttum á þann hátt að Palestínumennirnir neituðu að sleppa ísraelska hermanninum fyrr en palestínskum konum og börnum yrði sleppt úr ísraelskum fangelsum. Að því loknu snéru fréttastofurnar sér að næstu frétt.
Datt engum í hug að velta því fyrir sér hvað börn væru að gera í ísraelskum fangelsum? Er það ekki fréttnæmt að Ísraelar haldi börnum í fangelsi? Hvað eru þetta mörg börn? Af hverju eru þau í fangelsi? Hver er glæpur þeirra? Hvað hefur alþjóðasamfélagið gert til að þrýsta á um lausn barnanna? Hvað hafa Íslendingar gert? Er kannski verið að ræða um ungabörn fædd í fangelsi eða að þau hafi fylgt mæðrum sínum þangað? Við hvaða aðbúnað búa þessi börn? Hver eru rök Ísraelsmanna fyrir að halda þeim í fangelsi?
Ég hefði viljað fá svör við öllum þessum spurningum en fékk ekki svar við neinni þeirra. Ég fékk hins vegar að vita að hermaður hefði verið tekinn fanga í stríði.