tryggvi emilsson
Í dag klukkan þrjú verður hægt að berja ávöxt erfiðis míns undanfarnar vikur augum, en ég hef verið að vinna að sýningu um Tryggva Emilsson. Það er langt síðan hugmyndin kviknaði um sýninguna og höfum við Stefán Pálsson verið saman í hugmyndavinnu um hana. Við keyrðu eftir þeirri línu að Tryggvi væri róttæk verkalýðshetja og sýningina ætti að endurspegla það. Merkilegt nokk tóku haldendur sýningunnar, Orkuveita Reykajvíkur, vel í það. Hluti boðskortsins fer hér á eftir:
Á þessu ári eru þrjátíu ár liðin síðan bókin Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson kom út. Af því tilefni standa afkomendur Tryggva, í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, að sýningu um ævi og störf Tryggva en hann vann hjá Hitaveitu Reykjavíkur í yfir 20 ár, milli 1947 og 1970.
Sýningin verður haldin á 1. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1. Hún hefst kl. 15.00 í ráðstefnusal Orkuveitunnar þar sem Tryggvi Friðjónsson, stjórnarmaður Orkuveitunnar og barnabarn Tryggva Emilssonar, mun segja nokkur orð um afa sinn. Við opnun sýningarinnar flytja Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og Sigurður Skúlason leikari auk þess dagskrá byggða á æviminningum Tryggva. Bækurnar eru Fátækt fólk, Baráttan um brauðið og Fyrir sunnan.
Gestir frá afhenta bókina Fátækt fólk í kilju í boði afkomenda Tryggva á meðan að birgðir endast og gestum verður boðið upp á veitingar.