sögufölsun

Hvernig í veröldinni tókst mönnum að gefa út 24 síðna blað um þorskastríðin nú á dögunum án þess að minnast einu orðið á Lúðvík Jósepsson? Í bæklingi sem gefinn var út með Mogganum er ekki minnst á hann einu orði. Það er látið eins og hann hafi aldrei komið nálægt deilum um landhelgi Íslendinga. Nóg ætti Mogginn nú að eiga á lager af greinum þar sem þeir skamma hann fyrir að stefna vestrænu samstarfi í hættu með óbilgirni í landhelgismálunum.

Ég hélt að svona sölgufölsun væri liðin undir lok. En þetta er með því svakalega sem sést hefur. Minnir helst á þegar Stalín lét þurrka Trotskí út úr byltingarsögunni, lét meira að segja má hann út af myndum. Líklega eru einverjir að fótósjoppa Lúðvík út af myndum í myndasafni Morgunblaðsins á þessari stundu.

2 Responses to “sögufölsun”

  1. Sverrir Says:

    Morgunblaðið skammast sín eðlilega fyrir framgöngu blaðsins í þorskastríðunum. Eðlilegt að forsvarsmenn þess vilji ritskoða þá sögu.

  2. anna Says:

    Ég er bara alveg steinhissa. Er hægt að þurrka út nafn sjávarútvegsráðherrans við tvær mikilvægustu útfærslur landhelginnar, í 12 mílur og í 50 mílur?
    (Útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og gallharður Sjálfstæðismaður sem ég vann hjá í fimm ár á áttunda áratug síðustu aldar, vildi ekki sjá neinn annan sjávarútvegsráðherra en Lúðvík)