Archive for June, 2006

orðspeki hnakkanna

Wednesday, June 28th, 2006

Ákveðnir menn innan hópsins hafa einfaldlega girt niðrum sig og skitið á sig, Gilzenegger í Fréttablaðinu í dag. Ég hélt að ákveðin forsenda þess að maður skiti á sig væri einmitt að maður girti ekki niðrum sig.

fangelsuð börn og handteknir hermenn

Monday, June 26th, 2006

Ég horfði aldrei þessu vant á kvöldfréttatíma beggja sjónvarpsstöðvanna, NFS og Ríkissjónavarpsins. Í báðum fréttatímum var eðlilega sagt frá nýskeðum atburðum á Gaza þegar palestínskir vígamenn grófu göng undir landamærin, lentu í átökum við ísraelska hermenn og höfðu einn þeirra á brott með sér. Sama brotið var sýnt af Olmert þegar hann hótaði öllu illu og sagði enga óhulta. Síðan lauk báðum fréttum á þann hátt að Palestínumennirnir neituðu að sleppa ísraelska hermanninum fyrr en palestínskum konum og börnum yrði sleppt úr ísraelskum fangelsum. Að því loknu snéru fréttastofurnar sér að næstu frétt.

Datt engum í hug að velta því fyrir sér hvað börn væru að gera í ísraelskum fangelsum? Er það ekki fréttnæmt að Ísraelar haldi börnum í fangelsi? Hvað eru þetta mörg börn? Af hverju eru þau í fangelsi? Hver er glæpur þeirra? Hvað hefur alþjóðasamfélagið gert til að þrýsta á um lausn barnanna? Hvað hafa Íslendingar gert? Er kannski verið að ræða um ungabörn fædd í fangelsi eða að þau hafi fylgt mæðrum sínum þangað? Við hvaða aðbúnað búa þessi börn? Hver eru rök Ísraelsmanna fyrir að halda þeim í fangelsi?

Ég hefði viljað fá svör við öllum þessum spurningum en fékk ekki svar við neinni þeirra. Ég fékk hins vegar að vita að hermaður hefði verið tekinn fanga í stríði.

úrkynjun eigin sjálfs

Wednesday, June 21st, 2006

Nú hef ég verið tölvulaus í u.þ.b. viku. Harði diskurinn hrundi og ég gat því ekkert unnið. Sem betur fer var hún enn í ábyrgð og ég fékk þennan líka fína nýja harða disk fríkeypis eins og afgreiðslukonan orðaði það. Þessi vika leiddi hins vegar hugann að því hvað maður er orðinn úrkynjaður. Mér leið eins og ég væri handalaus án tölvunnar.

Tölvan atvinnutæki mitt þannig að ef hún er biluð þá get ég ekki unnið. Það tókst að bjarga þessu fyrir horn núna með hjálp góðs fólks, en Steinunn Þóra og Stefán lánuðu mér tölvuna sína svo ég gæti skilað af mér verkefnum. Það er hins vegar augljóst mál að ég tilheyri hinum úrkynjuðu mönnum sem ekkert geta gert án tækninnar. Má ég þá heldur biðja um haka og skóflu.

tryggvi emilsson

Thursday, June 8th, 2006

Í dag klukkan þrjú verður hægt að berja ávöxt erfiðis míns undanfarnar vikur augum, en ég hef verið að vinna að sýningu um Tryggva Emilsson. Það er langt síðan hugmyndin kviknaði um sýninguna og höfum við Stefán Pálsson verið saman í hugmyndavinnu um hana. Við keyrðu eftir þeirri línu að Tryggvi væri róttæk verkalýðshetja og sýningina ætti að endurspegla það. Merkilegt nokk tóku haldendur sýningunnar, Orkuveita Reykajvíkur, vel í það. Hluti boðskortsins fer hér á eftir:

Á þessu ári eru þrjátíu ár liðin síðan bókin Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson kom út. Af því tilefni standa afkomendur Tryggva, í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, að sýningu um ævi og störf Tryggva en hann vann hjá Hitaveitu Reykjavíkur í yfir 20 ár, milli 1947 og 1970.

Sýningin verður haldin á 1. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1. Hún hefst kl. 15.00 í ráðstefnusal Orkuveitunnar þar sem Tryggvi Friðjónsson, stjórnarmaður Orkuveitunnar og barnabarn Tryggva Emilssonar, mun segja nokkur orð um afa sinn. Við opnun sýningarinnar flytja Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og Sigurður Skúlason leikari auk þess dagskrá byggða á æviminningum Tryggva. Bækurnar eru Fátækt fólk, Baráttan um brauðið og Fyrir sunnan.

Gestir frá afhenta bókina Fátækt fólk í kilju í boði afkomenda Tryggva á meðan að birgðir endast og gestum verður boðið upp á veitingar.

sögufölsun

Friday, June 2nd, 2006

Hvernig í veröldinni tókst mönnum að gefa út 24 síðna blað um þorskastríðin nú á dögunum án þess að minnast einu orðið á Lúðvík Jósepsson? Í bæklingi sem gefinn var út með Mogganum er ekki minnst á hann einu orði. Það er látið eins og hann hafi aldrei komið nálægt deilum um landhelgi Íslendinga. Nóg ætti Mogginn nú að eiga á lager af greinum þar sem þeir skamma hann fyrir að stefna vestrænu samstarfi í hættu með óbilgirni í landhelgismálunum.

Ég hélt að svona sölgufölsun væri liðin undir lok. En þetta er með því svakalega sem sést hefur. Minnir helst á þegar Stalín lét þurrka Trotskí út úr byltingarsögunni, lét meira að segja má hann út af myndum. Líklega eru einverjir að fótósjoppa Lúðvík út af myndum í myndasafni Morgunblaðsins á þessari stundu.