Archive for February, 2006

bloggleiði

Friday, February 24th, 2006

Þegar ég ákvað að opna þessa síðu sagði ég við sjálfan mig að ég mundi aldrei láta það verða kvöð að blogga, bara til þess að eitthvað nýtt væri á síðunni. Eftir marga krísufundi hjá ritstjórn Múrsins, tillögur um stundaskrá fyrir ritunartíma og fleira í þeim dúr var ég ákveðinn í að skrifa bara þegar mig langaði til þess. Samt sit ég hér og blogga án þess að hafa nokkuð að segja og án þess að langa til þess.

Og þó. Mikið ótrúlega var Benni HemmHemm góður á Grandinu í gær. Það er komið á fimm ára áætlun að eignast plötuna. Bendi mönnum síðan að taka mánudagskvöldið frá fyrir Amnesty-bíó:

Amnesty-bíó
Heimildamynd um mannréttindabrot og olíuvinnslu í Nígeríu

Kæri félagi,
mánudaginn 27. febrúar verður Amnesty-bíó. Þá sýnir Amnesty International heimildamyndina “The drilling fields”, sem fjallar um mannréttindabrot og olíuvinnslu í Nígeríu.
Sýningin hefst kl. 20.30 og tekur sýningin 50 mínútur. Myndin er með ensku tali og ótextuð.
Eftir sýninguna gefst fólki kostur á að skrifa bréf til forstjóra Shell og Chevron vegna mannréttindabrota í Nígeríu, sem fyrirtækin eru talin tengjast.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við hvetjum alla, félaga og aðra, að koma og fræðast um fyrirtæki og mannréttindi, og leggja sitt af mörkum í þágu mannréttinda.

Skrifstofan

bloggleiði

Friday, February 24th, 2006

sirkus

Saturday, February 11th, 2006

enn af þýðingum

Friday, February 10th, 2006

íran

Wednesday, February 8th, 2006

nýr ritstjóri

Wednesday, February 1st, 2006