náttúruverndarrokk

Fór á tónleikana margumtöluðu í Laugaralshöllinni í gær fyrir algjöra tilviljun. Bróðir minn hringdi nokkrum klukkutímum fyrir konsert með aukamiða og ég sló til. Því sé ég ekki eftir, þetta voru frábærir tónleikar í alla staði. Atriðin fjölbreytt og úrvalið gott og allt skipulag til mikillar fyrirmyndar - það var gaman að fylgjast með Ásgeiri rótara og öllum hinum sópa burtu haug af græjum og koma nýjum fyrir á mettíma. Það ber að taka ofan af fyrir fólkinu sem lagði á sig skipulagningu og vinnu fyrir þessa tónleika - það er meira en ég hef gert þegar kemur að baráttu gegn Kárahnjúkavirkjun.

Það eina sem sló mig við tónleikana var þáttur Coca Cola og Dominos. Inni í sal var á milli atriða varpað upplýsingum um hin illu stórfyrirtæki sem virtu ekk iumhverfið - uppi á lofti var hins vegar boðið upp á endalausar pizzur og kók. Pappakassarnir í tonnavís og ekki var annað hægt en að leiða hugann að starfsemi Coca Cola víða um heim. En það er kannski bara þannig að fyrir okkur borgarbúana snýst umhverfisvernd eingöngu um gróður og gras, ekki þann úrgang sem neyslusamfélagið getur af sér í borgunum.

Comments are closed.