slow train
Í kvöld fara allir á Grand rokk. Þar mun hin geysivinsæla hljómsveit Slow Train spila. Eins og glöggir Dylanaðdáendur ættu að fatta út frá nafninu, þá sérhæfir bandið sig í dylan lögum, er m.ö.o. dylan-tribute band. Ég hef einu sinni séð þá og mæli hiklaust með þeim. Allir eru þeir á Suðurlandinu, tveir á Selfossi og tveir hjá Skógræktinni í Þjórsárdal. Ef það að sjá sunnlenska bændur og athafnamenn syngja Dylan af lífi og sál er ekki eitthvað fyrir þig þá er eitthvað að. Lestin leggur af stað um tíu.
January 5th, 2006 at 3:35 pm
Verður þetta mjög hæg ferð í gegnum kvöldið?
January 5th, 2006 at 6:36 pm
Nei þetta verður mikið fart og fjör!