sjón
Friday, December 30th, 2005Las Argóarflísina yfir jólin. Það er langt síðan ég las svona góða bók. Ég varð æ meira hissa eftir því sem leið á lesturinn og ætlaði ekki að trúa því að í raun væri hún svona góð en það var hún sannarlega. Annars er d-takkinn á tölvunni minni bilaður og því sjá glöggir lesarar að lítið er um orð í færslunni sem fela þann staf í sér. Þetta er í annað skipti sem sá takki bilar - ég kenni æsingi sonar míns í Fifa þar um.