bætur
Manneskja sem ég þekki hefur nýverið skráð sig á atvinnuleysisbætur. Nú vill svo til að viðkomandi er ekki sérstaklega viðkvæmur fyrir því. Hins vegar er jafnljóst að til er fullt af fólki sem lítur á það sem algerlega sitt einkamál hvort það þiggur atvinnuleysisbætur eða ekki. Enn fremur er vitað að margir skammast sín fyrir að fara á atvinnuleysisbætur. Það eymir enn eftir af því viðhorfi að það sé aumingjaskapur að “segja sig til sveitar” og menn eigi að skammast sín fyrir það. Að sjálfsögðu er þetta fáránlegt viðhorf, allir geta lent í þeim aðstæðum að þurfa að þiggja atvinnuleysisbætur.
Manneskjulegt kerfi ætti að mínu mati að gera sem minnst úr mögulegum óþægindum þeirra sem þurfa að nota kerfið. Það leiðir aftur hugann að þeim sem ég þekki og þiggur nú bætur. Viðkomandi býr í fjölbýlishúsi sem þó er með sameiginlegri bréfalúgu. Eins og fyrr hefur verið nefnt er viðkomandi ekki viðkvæmur fyrir því að þiggja bætur. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann hafði á orði við mig nýverið af hverju þyrfti endilega að merkja umslagið í bak og fyrir þannig að allur heimurinn sæi að hann væri á atvinnuleysisbótum. Umslagið er nefnilega tryggilega merkt Atvinnuleysistryggingasjóði með fínu lógói og alles.
Nú veit ég að lógóvæðing hefur riðið yfir íslenskt samfélag. Það er ekki til það smáfélag, fyrirtæki eða hópur sem ekki býr yfir lógói sem hægt er að troða á allt sem frá viðkomandi kemur. Ég held hins vegar að þegar kemur að jafnviðkvæmu máli og atvinnuleysisbætur því miður eru enn, þá séu menn á villigötum. Það er algjör óþarfi að hið opinbera þurfi að auglýsa það hverjir fá atvinnuleysisbætur og hverjir ekki.
Umræðan um íslenska bótakerfið skýtur reglulega upp kollinum og er það vel. Ég hef heyrt menn halda því fram að í raun ættu menn ekki að tala um bætur - heldur laun - því orðið bætur hefði á sér neikvæða mynd. Hvort sem það verður niðurstaðan eða ekki þá finnst mér með öllu fáránlegt að auglýsa jafnviðkvæmar persónulegar upplýsingar á þennan hátt. Vissulega er lógóið voðaflott en á ekki við hér.
November 9th, 2005 at 2:11 am
Var að lesa verðbólguspá íslandsbánka og þar segir guðhjálpimér undir yfirskriftinni Vaxandi Verðbólguþrýstingur ma.:
Atvinnuleysi er aðeins 1,4% af vinnuafli og ljóst er að spenna ríkir á vinnumarkaði.
Þarna er verið að segja, að ef atvinnuleysi er lágt muni það hafa verðbólgu í för með sér. Því er hægt að spyrja hvort það sé félagslega sanngjarnt að gera svo og svo mörg prósent af vinnuafli atvinnulaus til að halda verðbólgu í skefjum. Mér finnst það ekki sanngjarnt að atvinna sé einhverskonar spil um hver sitji uppi með svartapétur. En ef svo er, þá er bara sanngjarnt að þau sem fá svartapétur fái sanngjörn laun fyrir.