málfarsmínútan - tölvupóstar
Orð dagsins er tölvupóstur. Tölvupóstur er nafnorð þar sem aldagamalt orð, póstur, fær nýja skírskotun í ljósi tækninýjunga. Í staðinn fyrir e-mail, emil eða ýmis önnur orð, var orðið tölvupóstur búið til og allir voru sáttir. Eða hvað? Nei ekki ég.
Að vísu er fínt að tala um tölvupóst og ger ég það óspart. Það sem er hins vegar óþolandi er endalaus notkun fleirtölumyndar þessa orðs, tölvupóstar. Í umræðum um hið stórskemmtilega og alls ekki langdregna Baugsmál, hefur tal um tölvupósta tröllriðið öllum fréttastofum þessa lands. Menn velta því fyrir sér hvar Fréttablaðið hafi fengið alla þessa tölvupósta, hversu margir tölvupóstarnir voru, hvernig Jónína Ben meðhöndli tölvupóstana sína o.s.frv.
Gamla orðið póstur var notað yfir bréf sem og þá sem báru þau út, póstana t.d. landpóstana. Þeir voru merkilegir fýrar en enginn þó meira en Gunnar póstur. Vel má vera að í þessu endalausa tali um tölvupósta sé verið að vísa í arftaka Gunnars og kollega hans, þó efast ég um það. Hér er hins vegar á ferð mjög furðuleg notkun á þessu orði.
Hvað er að orðinu bréf? Af hverju geta menn ekki fengið tölvubréf, eitt eða fleiri? Ég trúi því ekki að fréttamenn þessa lands sem tala um marga tölvupósta taki upp bréfabunka heima hjá sér og kalli “Þú fékkst fjóra pósta vinan!”
Skerum upp herör gegn rangri fleirtölunotkun á þessu ágæta orði! Skerum þá niður sem ekki tala rétt og fallegt mál!
October 20th, 2005 at 7:01 pm
Ég er nú heldur á því að Björn póstur hafi verið merkilegasti pósturinn, það er ekki nema hugsanlega að Sveinn póstur hafi tekið honum fram…
October 20th, 2005 at 7:01 pm
Ég er nú heldur á því að Björn póstur hafi verið merkilegasti pósturinn, það er ekki nema hugsanlega að Sveinn póstur hafi tekið honum fram…
October 20th, 2005 at 11:48 pm
Hjartanlega sammála með póstinn og Gunnar póst.
Ég fékk fjögur bréf með tölvupóstinum í dag, en tvö með sniglapóstinum.
October 21st, 2005 at 10:24 am
Gunnar, Gunnar póstur
Garpur á dökkum jó
-Haukur Morthens
(ef rétt er munað)
October 21st, 2005 at 3:59 pm
Svo má ekki gleyma því að póstur er magnorð. Hvar fengu menn allan þennan póst, hve mikill var hann, hvernig fór J. B. með hann o. s. frv.? Fleirtalan er fullkomlega ónauðsynleg. Ekki svo að skilja að neitt sé að orðinu tölvubréf.
October 23rd, 2005 at 3:13 pm
Já, hvimleitt að fólk kunni ekki með fleirtölur að fara.