auglýsingar
Einu sinni hélt ég að bannað væri að vera með auglýsingar hjá Rúv sem beint væri sérstaklega að börnum. Nú virðist öldin önnur. Nú er barnaefnið í sjónvarpinu reglulega brotið upp með auglýsingum frá MacDonalds um glaðbeitt börn með falleg og litrík leikföng sem aðeins fást hjá skyndibitakeðjunni. Heimur versnandi fer. Ég trúi ekki öðru en að þetta sé á einhvern hátt ólöglegt eða brjóti í bága við einhverjar reglur.
Davíð Þór er byrjaður að blogga. Það er alltaf gaman að lesa pælingar hans, sérstaklega eftir að bjartsýnin náði yfirtökum í lífi hans.