ákvarðanir

Ákvarðanir eru merkilegur hlutur. Oft hef ég átt mjög létt með að taka ákvarðanir sem skipta töluverðu máli í lífinu, en á móti átt í mestu vandræðum með að taka ákvarðanir sem litlu skipta. T.d. er það kvöl og pína þegar við Kristinn Schram ákveðum að hittast, sem er ósjaldan. Verst af öllu er ef við ætlum að fá okkur að borða. Upphefst þá mikið japl jaml og fuður þar sem hvorugur okkar hefur neina sérstaka skoðun á því hvert við eigum að fara. Kaffihúsaval er ekki mikið skárra. Ferðir á vídeóleigur geta tekið upp undir klukkutíma ef ég er með einhverjum öðrum, sérstaklega ef það er Kristinn sem um ræðir. Hins vegar hef ég tekið ákvarðanir sem varða starfsframa minn, tímabundin eða lengri verkefni, á nóinu. Smellt töffaralega í góm og sagt “kílum á það”.

Nú hef ég hins vegar legið undir feldi þessa vikuna (eftir að Latabæjaræðið var úti). Mér stendur til boða starf úti á landi. Starfið er ótrúlega spennandi og býður upp á ýmsa möguleika, er fjölbreytt, því fylgir ábyrgð og maður þarf að sýna sjálfstæði í starfi. Það er hins vegar í um fimm klukkustunda akstursfjarlægð frá Reykjavík. Það er niðurkomið í mjög fámennu þorpi og næsti þéttbýliskjarni, reyndar ekki nema í fjörutíu kílómetra fjarlægð, inniheldur um níuhundruð íbúa. Þessi ákvörðun hefur vafist fyrir mér og þarf ég endanlega að tilkynna um hana í dag.

***************************************

Ég fattaði það ekki almennilega fyrr en ég las um stefnuræðu Davíðs, viðbrögð við henni og barnaleg viðbrögð hans við umfjöllun Kastljóss um hana - hversu ótrúlega ánægður ég er með það að maðurinn skuli vera að hætta í íslenskum stjórnmálum. Það er ekki einleikið hvað hann hefur komist upp með í gegnum tíðina, oftar en ekki vegna kjakleysis fjölmiðlamanna. T.d. þegar hann neitaði að mæta í sjónvarpsviðtöl nema að fá að vera einn. Datt engum á fjölmiðlunum í hug að ef að fjölmiðlar hefðu þvertekið fyrir þetta þá hefði þetta hitt Davíð sjálfan fyrir?

Það verður áhugavert að fylgjast með Geir H. Haarde. Þegar ég var kosningastjóri í alþingiskosningunum 1999 var Geir mjög áberandi í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins. Það var ekki fyrr en á lokametrunum að Davíð steig fram fyrir skjöldu. Þá fannst mér Geir sýna það að um margt væri hann mun sterkari pólitíkus en Davíð. Hann var fyndinn og skemmtilegur um leið og hann var rökfastur. Sem betur fer, fyrir andstæðinga Sjálfstæðisflokksins, hefur léttleiki Geirs verið á undanhaldi síðan þá.

One Response to “ákvarðanir”

  1. s Says:

    Já, kannast við þetta að eiga erfitt með að taka ákvarðanir í litlu málunum, ótrúlegt hvað það getur vafist fyrir manni, hvort maður eigi að elda fisk eða kjöt, fara í brúna eða bláa bolinn, það er bara svo fjandi margt í boði! Ég kalla þetta val-kvíða. Þetta “vandamál” hlýtur að hljóma í meira lagi sjúkt, fyrir afríkubúann sem veltir fyrir sér hvort hann fær að borða í dag eða ekki.