latibær

Nú er ég búinn að vera í nokkurra daga þýðingartörn á Latabæ. Það hefur þýtt það að lítið annað hefur komist að. Ég lifi s.s. nú um mundir í ýktum bæ í skærum litum, þar sem sviss/svúss heyrist þegar hendur eru hreyfðar og menn fara frekar um á handahlaupum en að ganga eðlilega. Það hefur orðið til þess að gera mig fullkomlega veruleikafirrtan og hægt og hægt nálgast ég geðveikina. Ef Íþróttaálfurinn finnst kæfður í hollu grænmeti einhversstaðar, þá bið ég allt gott fólk um að tryggja mér fjarvistarsönnun.

One Response to “latibær”

  1. Davíð Þór Says:

    Man ekki netfangið þitt svo ég sendi þér slóðina hérna. http://www.deetheejay.blogspot.com/ Þú lest vonandi athugasemdirnar sem þú færð á bloggið þitt.