kennsla og látbragðsleikur
Í gær kenndi ég fyrsta tímann í námskeiði í Endurmenntun Háskóla Íslands. Það var gaman, þó ekki hefði stofan nú verið full. Hvet ég alla til að drífa sig á námskeiðið þó þeir hafi misst af fyrsta tímanum. Hvað er skemmtilegra en að velta fyrir sér gríni á Íslandi, setja það í samfélagslegt samhengi og skoða atburði tuttugustu aldarinnar út frá því?
Sá aðeins af umræðum á Alþingi í gærkvöldi. Margt má segja um Halldór Blöndal. Eitt er þó víst að hann hélt ákveðnu pókerfési á meðan ræður fóru fram. Ég vissi ekki hvert Sólveig Pétursdóttir ætlaði með geiflum sínum og grettum. Ef henni mislíkaði eitthvað - sem henni gerði ætíð hjá andstæðingum sínum - sást það langar leiðir á yfirlætisgrettum hennar. Hins vegar yfirtók undirlægjuglottið andlit hennar þegar henni líkaði málflutningur sinna manna. Á þetta ekki að vera forseti Alþingis alls? Eða er þetta kannski í stað þess að eyða peningum í túlkaþjónustu fyrir heyrnalausa? Af svip þingforseta má ráða hvort málfutningurinn er þóknanlegur hæstvirtri ríkisstjórn eða ekki.
October 6th, 2005 at 12:15 am
Ég var nú búin að ákveða að skella mér bæði á þetta námskeið þitt og námskeiðið um krossferðirnar, sem kemur í beinu framhaldi af því á þriðjudögum.
Búin að plata karlinn og góðan vin okkar til að koma með og allt til reiðu.
Kom þá ekki í ljós að gítartímar elsta sonarins verða akkúrat á þriðjudögum og skarast við tímasetninguna á námskeiðunum. Og þar sem gítarskólinn er far, far, away og drengurinn enn ekki nógu gamall til að ferðast þetta einn, í það minnsta ekki á þessum tíma kvölds, þá varð ég bara að hætta við.
Ég er grútspæld, en maður getur víst ekki gert allt sem maður vill, og aldrei færi ég að taka gítarnámið af drengnum….
Svo ég vona bara að ég verði heppnari næst !