Í dag er menningarnótt sem er ekkert merkilegt þannig nema kannski út af því að fyrir tveimur árum einmitt á menningarnótt þá höfðum við Palli búin að vera dúlla okkur saman í nokkrar vikur en þetta var í fyrsta skiptið sem við fórum e-ð saman sem kærustupar og svona opinberuðum sambandið okkar fyrir umheiminum. Vegna þessa þykir mér alltaf soldið vænt um menningarnótt.
Í dag ákváðum við að ganga niður í bæ með Hrapp í vagninum. Við kíktum í kaffi til afa og ömmu Palla. Eftir það var rölt á Seljaveginn því þar var okkur boðið í fyrsta barnaafmælið okkar. Það er sem sagt orðið official. Við höfum verið tekin í tölu með hinu barnafólkinu. Hehe. Soldið skrítin tilfinning en góð samt.
Annars soldið sætt. Hrappur er farinn að hlæja með mömmu sinni. Sem sagt ef ég hlæ framan í hann brosir hann sínu breiðasta og hlær til baka. Mjög sætt. Ég bráðna a.m.k. í hvert skipti sem hann gerir þetta.


