Við Palli skelltum okkur á Eskifjörð seinustu helgi. Lögðum af stað á sunnudagsmorgninum og keyrðum sem leið lá um allt suðurlandið alla leið á Eskifjörð. Þetta var soldið löng keyrsla en við vorum dugleg að stoppa og líta í kringum okkur enda alveg æðislegt ferðaveður. Tókum líka upp tvo puttalinga fyrir utan Höfn í Hornafirði og keyrðum þá á Egilstaði. Þau voru frá Litháen og voru alveg voðalega þakklát fyrir farið enda voru þau víst búin að bíða í 3 tíma eftir að einhver stoppaði og tæki þau upp. Við komum svo við í Miðhúsum hjá Eddu frænku hans Palla rétt fyrir utan Egilstaði áður en við keyrðum niður í Eskifjörð alveg búin á því eftir tæplega 11 tíma ferðalag þann daginn. Á Eskifirði gistum við í húsi ömmu Palla en hún er tiltölulega nýflutt á dvalarheimili fyrir aldraða þarna á Eskifirði svo húsið hennar stendur bara autt. Það var rosa notalegt að hafa svona húsið fyrir okkur. Á mánudeginum og þriðjudeginum notuðum við svo tímann til að heimsækja ættingja Palla þarna á Eskifirði og á Egilstöðum og líka bara skoða okkur um. Ég er náttúrulega ekki beint fær í einhverjar fjallgöngur lengur svo þetta var allt mjög rólegt bara. Á miðvikudagsmorguninn ákváðum við svo að keyra heim. Tókum norðurleiðina í þetta skiptið svo það má segja að við höfum farið hringinn í þessari ferð. Mér fannst það nokkuð gott fyrir konu sem var komin rétt tæpar 38 vikur. Heimferðin gekk vel þó við náðum ekki að njóta hennar eins vel og ferðin austur aðallega ef því að það rigndi alla leiðina og þá meina ég ALLA leiðina heim! Ok nei kannski ekki alveg en það var þoka fyrir austan og um leið og við vorum komin úr þokunni þá tók við rigningin og það rigndi á okkur alveg þangað til við vorum komin rétt fyrir utan Borgarnes. Ótrúlegt! Það er bara ekki eins gaman að ferðast um landið þegar maður sér eiginlega ekkert fyrir þoku og rigningu. Blegh. En jæja við reyndum nú samt að gera bara gott úr þessu. Stoppuðum meðal annars í jarðböðunum á Mývatni sem var alveg rosalega notalegt, komum við hjá Villa á Reykjum (hann er að vinna þar á byggðasafninu) og spiluðum hljómsveitarleikinn til að hafa ofan af okkur á leiðinni heim. Það var samt ekki hægt að segja annað en við hefðum verið alveg rosalega ánægð að koma heim eftir þetta ferðalag enda bæði alveg búin á því.
Þetta var rosalega skemmtileg ferð þrátt fyrir að veðrið hafi ekki leikið við okkur. Æðislegt að hafa svona góðan tíma bara við tvö svona áður en við verðum þrjú.
Palli er síðan búin að vera í sumarfríi alla vikuna svo við höfum bara verið að taka því rólega síðan við komum heim. Fórum í bæinn í gær og versluðum e-ð sem átti eftir að kaupa áður en litla krílið kemur. Nú vantar mig bara að kíkja í Lyfju og kaupa e-ð smádót þar og síðan ætla ég að panta einhver innlegg og fleira í taubleyjurnar á netinu og þá erum við nokkuð góð a.m.k. svona til að byrja með.
Í næstu viku þarf Palli síðan að vinna soldið extra. Bæði út í Eirbergi hjá hjúkkunum og í þessari Fram bók með Stefáni vini sínum svo ég býst við að ég reyni annað hvort að taka smá aukavinnu eða fari alveg í hina áttina og taki því bara áfram frekar rólega. Ég er víst búin að bóka mig á tvær vaktir í næstu viku. Ein er nú bara á morgun og hin á fimmtudeginum. Kannski læt ég það bara duga og leyfi mér að slappa soldið af. Er byrjuð að vera soldið þreytt þessar seinustu tvær vikur enda kannski ekkert skrítið miðað við að ég er komin rúmar 38 vikur núna. Hehe. Alveg ótrúlegt að hugsa til þess að litli gaurinn gæti komið næstum því hvenær sem er núna. Ekki það að ég búist e-ð við honum fyrr en eftir settan dag (17.júlí) en það er samt skrítið að hugsa til þess að það gæti allt farið af stað hvenær sem er.
Ég fékk reyndar í gær verstu fyrirvaraverki sem ég hef fengið á þessari meðgöngu. Vorum að labba heim úr bænum eftir að hafa verið að versla og allt í einu harðnaði kúlan alveg svakalega og svo komu alveg rosalegir verkir með sem versnuðu alltaf reglulega en minnkuðu svo á milli. Ætli líkaminn minn sé ekki bara að minna mig á að þetta fer nú allt að koma núna þó það sé ekki að fara að gerast alveg strax.
Sem minnir mig á að ég tók mynd af bumbunni í gær enda fannst mér ég vera orðin alveg svakalega stór þegar ég leit í spegilinn. Hehe. Veit samt að ég á bara eftir að stækka enn frekar áður en sá litli lætur sjá sig. Ætli ég verði ekki orðin eins og hvalur undir lokin með þessu áframhaldi. Hehe. Læt hana fylgja með svona sérstaklega fyrir þig Valdís svo þú getir séð hvað litli frændinn þinn dafnar vel í bumbunni á systur þinni. Held ennþá í vonina um að vera búin að eiga áður en þú kemur en miðað við fyrri reynslu kvenna í okkar ætt er ég ekkert of bjartsýn á það. Hehe. En við sjáum til.
Hérna er myndin:

En ég er líka með bumbu :s
Hehe já Birkir minn það er víst þannig með ykkur strákana að þið eruð allir komnir með svolitla bumbu núna enda komnir yfir þrítugt og engin unglömb lengur

ég get nú huggað mig við það að styttist í að mín bumba minnki allverulega og svo er það bara út að labba með vagninn til að minnka hana enn frekar
gangi þér vel á seinustu metrunum hanna mín. við himmi og hrafnildur hlökkum til að fá svo sendar myndir af litla gutta.
ps. ég held þú ættir bara að láta það vera að fá þér aukavaktir. slappaðu frekar af og njóttu þess að vera svona svakalega mikið ólétt þessa síðustu daga;)
gangi þér rosalega vel, þetta er hörku action sem þú átt í vændum þannig að taktu því bara rólega.. njóttu þess að sofa í meira en 3 tíma í einu og að ná að borða kvöldmat með Palla..
Ég er orðin rosalega vön því að borða seinna en allir og borða kaldan mat.. en manni er auðvitað alveg sama þegar maður sé litla gaurinn sinn brosa
æji, það var svo gaman að fá aðeins að hitta ykkur um daginn, hlakka til að hitta litla manninn.