Jæja þá fer nú að líða að þessu. Í gærnótt fann ég í fyrsta skiptið fyrir fyrirvaraverkjum en þeir lýstu sér þannig að ég fékk alveg rosalega samdrætti sem ég hef nú fengið meir og minna allar seinustu vikurnar á meðgöngunni en núna fékk ég verki með. Verkirnir voru soldið eins og túrverkir og ég fann alveg svakalega fyrir þeim í bakinu. Þeir entust í tæpan klukkutíma og ég fór bara að sofa enda ekkert að búast við litla gaurum strax. Í gær fann ég svo aftur fyrir sömu verkjum þegar ég var niður í bæ með mömmu og Tryggva og svo aftur í nótt. Held að líkami minn sé bara að undirbúa mig fyrir það sem koma skal þó ég hafi enga trú á því að þetta sé að fara að gera alveg strax.
Á morgun verð ég komin 37 vikur og þá eru 3 vikur í settan dag og örugglega alveg 4 vikur í að krílið láti sjá sig. Ég er samt að reyna að vera duglegri að hvíla mig núna enda er ég alltaf að heyra hvað það er ekki gott að mæta dauðþreyttur í fæðinguna. Er að byrja að minnka við mig vinnuna núna og reyni líka að vera duglegri við að hvíla mig eða jafnvel bara leggja mig á daginn en það veitir sko ekkert af því ég er alltaf (og þá meina ég alltaf) að vakna á nóttunni núna til að pissa. Ekkert rosalega skemmtilegt en ég er a.m.k. fljótari að sofna aftur núna þegar Palli er kominn heim. Kúri mig bara upp að honum og þá sofna ég mjög fljótt.
Við fórum í mæðraskoðun í gær og allt leit mjög vel út. Strákurinn er búinn að koma sér fyrir í höfuðstöðu og er byrjaður að skorða sig. Hann er ennþá lausskorðaður en þetta er víst alveg að koma hjá honum. Blóðþrýstingurinn minn var ennþá mjög góður, ekkert í pissinu, byrjað að hægast aðeins á þyngdaraukningunni hjá mér (loksins!) og hjartslátturinn hjá stráknum alveg eins og hann á að vera. Mjög ánægð með þetta.
————————————-
Í lok vikunnar erum við Palli að hugsa um að skella okkur í ferðalag. Pælingin er að koma sér austur á austfirði og taka smá afslöppun þar tvö áður en við verðum þrjú. Ég hlakka mikið til.
oh þetta er svo spennó
Gott að allt gengur vel og UM AÐ GERA AÐ SLAKA Á!!! (fóstbræður: “Og slaaaaaaaaaaaaka”) hehe.. Það er besta ráð í heimi þessar vikurnar fyrir lífsbreytinguna miklu… Sofa,pissa,sofa,pissa,pissa,sofa,kúra,hafa það gott! 
Knús í klessu,
Erla
Gangi þér vel, frændi.