Archive for December, 2007

Í ár held ég uppá jólin bæði á Íslandi og í Frakklandi

Jólin voru mjög mikið æði. Palli og ég eyddum aðfangadagskvöldi með mömmu og pabba og auðvitað ömmu í Hagaselinu. Það var voða næs. Amma var í fýlu allt kvöldið en það er alveg hætt að hafa áhrif á mig svo ég get bara hlegið af því. Auk þess vorum við ekkert langt fram eftir í Hagaselinu. Við vorum meir að segja komin heim frekar snemma eða um 10 þar sem við opnuðum pakkana frá hvort öðru og svo steinsofnuðum bæði alveg búin á því.

Ég fékk alveg rosa margt fallegt í jólagjöf. Mikið fín náttföt frá Oddnýju, ferðageislaspilara og miða á Bruce næsta sumar frá Palla, þvottavél frá tengdó, mikið gott vanillu body spray frá Míu litlu og voða fína vettlinga og alls konar fallegt skraut frá mömmu og pabba. Mjög sátt.

Jóladag fórum við í heimsókn til mömmu og pabba og tókum með okkur Tryggva sem hafði ekki eytt aðfangadegi með okkur. Við vorum alveg pakksödd þegar við komum heim en þá tók við að pakka niður öllu fyrir ferðina mína því ég átti flug klukkan 7:50 á Annan í jólum. Ég þurfti svo sem ekkert að pakka rosa mikið fyrir mig en ég var að taka með mér fisk og jólagjafir og íslenskt nammi og ég veit ekki hvað fyrir Valdísi og þau úti. Endaði með eina ferðatösku, bakpoka og tösku í handfarangur. Sem betur fer var þetta ekkert svo mikið þungt allt saman. Bara betra að hafa þetta svona í mörgum töskum en að hafa eina alveg alltof þunga.

Ég er sem sagt núna komin til Vitrac í Frakklandi. Hérna búa amma og afi Tomma mágs míns og hér var mér boðið að koma til að hitta systur mína og fjölskylduna. Við erum hérna 8 en það er ekki hægt að segja að maður finni fyrir því nema við matarborðið. Hérna eru amma og afi Tomma Raymond og Ronald, mamma og pabbi Tomma Oliver og Edda, Valdís, Tommi og Tristan og auðvitað ég. Valdís var búin að segja mér að hérna væri sko allt voða afslappað og alveg rosafínt að vera og hún var sko ekkert að ýkja. Morgunmatur er á borðinu frá svona 9 til 11 svo er hádegismatur milli 1 og 2 og auðvitað er hann svona þrí eða fjórrétta og svo um 7 eða 8 er sest niður við kvöldmatarborðið og það virðist alltaf vera amk fjórrétta. Á milli þess sem er borðað þá er bara farið í gönguferðir, lesið, nördast í tölvunum, horft á sjónvarpið eða e-ð álíka afslappað. Rosa gott.
Í gær þegar ég kom alveg búin á því eftir flugferðina, biðina á lestarstöðinni og svo lestarferðina hingað þá beið mín svaka máltíð. Það var rosagott að fá almennilegan mat eftir þetta ferðalag. Ég var alveg búin á því. Flugið út var rosa næs fyrir utan þessa rosalegu ókyrrð sem var á meðan við flugum yfir Atlandshafið. Hún var ekki að gera góða hluti. Eftir flugið, allan tímann sem tók að fá farangurinn, koma sér inn í París, bíða á lestarstöðinni þá verð ég að viðurkenna að ég var ekkert sú allra hressasta þegar ég settist loks í lestina. Mér var alveg svakalega óglatt og eftir rúman klukkutíma náði ég að kasta upp öllum matnum sem ég hafði ekki náð að melta fyrir þann tíma. Mér leið reyndar töluvert betur eftir uppkastið en þá voru ennþá alveg 3 tímar í að ég myndi vera komin á áfangastað. Af einhverjum ástæðum gat ég ekkert sofið í þessari ferð. Svo það var gott að koma hingað í Vitrac og fá svona góðan mat og svo þetta rosalega fína herbergi sem ég deildi með Tristani litla frænda mínum. Það eru tvö frekar stór og góð rúm í því og við erum með okkar eigið baðherbergi. Þetta er bara eins og vera á hóteli.

Dagurinn í dag er búin að vera rosa næs. Mikið af góðum mat, gönguferðir og kíkt í næsta bæ. Mjög notalegt. Veðrið er æði. Hitinn er búin að vera svona 6 stig og ofar og bara næstum heiðskýrt og voða svona vor í loft eða kannski snemmt haust. Eina sem vantar er bara Palli minn en það er svona að vera ástfanginn auli sem stingur af til útlanda.

Ég hlakka svo til. Ég hlakka alltaf svo til.

Mikið var gaman að líta út um gluggann í morgun og sjá allan jólasnjóinn.

Ég fór í skötu til Doddu Maggýjar frænku minnar í gær á Þorláksmessu. Það var rosalega gaman. Ég borða að vísu ekki skötu eða annan fisk enda fór ég meira fyrir félagskapinn en matinn.
Fyrir utan skötuveisluna þá tók ég dag Þorláks helga mjög rólega. Fór í Bláa lónið með mömmu, pabba og Tryggva og svo bara tjillaði ég heima þangað til ég fór til Doddu. Mjög notalegt. Ætlaði niður í bæ en endaði að vera svo lengi hjá Doddu að ég fór bara beint heim í staðinn.

Í dag fórum við í möndlugraut til Himma og Saló með tengdó í hádeginu. Hilmar tengdapabbi fékk möndluna svo hann fékk gjöfina. Það var rosafínn lava lampi. Mjög skondinn.

Núna sit ég bara heima að slappa af að hlusta á Elvis syngja jólalögin og njóta þess að hafa smá ró áður en pabbi kemur að sækja okkur hjónin til að fara upp í Hagasel að elda hnetusteikina okkar. Við ætlum að vera hjá mömmu og pabba í kvöld. Palli var svo góður að láta það eftir mér.
Ég hlakka mikið til að borða í kvöld. Hnetusteik, Ora baunir, rósakál og brúnaðar kartöflur. Hvernig er annað hægt en að fá vatn í munninn við tilhugsunina. Svo eftir matinn verða pakkar opnaðir og kannski meira borðað. Við ætlum samt að geyma pakkana til hvors annars þangað til við komum heim aftur í Hagamelinn. Ég held ég sé meira spennt fyrir því að Palli opni pakkana sína frá mér en að fá pakka sjálf. Ég held ég sé meira svona gefa en þiggja. Sem er víst í ættinni. Hehe.

Jæja best að fara að taka sig til áður en pabbi lætur sjá sig. Að lokum langar mig bara að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og þakka ykkur fyrir stundirnar á árinu sem er að líða. Hafið það gott í kvöld.

Voða svona jólajóla e-ð

Seinasta helgi var nú meira jóla jóla e-ð.
Mamma og ég höfðum ákveðið að baka saman á laugardeginum en svo varð bara einhvern vegin alveg miklu meira úr þessu öllu saman.

Það var byrjað að fara á laugardagsmorguninn upp í Heiðmörk að ná í tré fyrir Hagaselið og eitt lítið (sem var síðan ekkert svo lítið en samt minna en m&p) fyrir okkur í Hagamelnum. Eftir mikið brölt í skóginum fannst tréð í Hagaselið sem er nú alltaf soldið mál þegar það eru svona sterkar skoðanir um hvernig tréð á að vera. En þetta árið fundum við svo fínt tré að meira að segja pabbi gat ekki annað en verið ánægður.
Svo var haldið í Hagaselið og byrjað að baka sörur og appelsínusmákökur og sælgætirköku fyrir Jóladag. Við mamma bökuðum þangað til við þurftum að fara að drífa okkur á jólatónleika Sinfó. Tónleikarnir voru rosalega flottir og alveg þess virði að skella sér á. Hló og hló að Barböru trúð, dansararnir frá listadanskólanum stóðu sig með príði og sinfónían stendur nú alltaf fyrir sínu. Gaman að heyra Hnotubrjótinn í svona búningi og bara líka live en ekki bara á disk. Þetta er nú einmitt eitt af mínum uppáhaldsverkum.

Við fórum síðan í Kringluna í smá jólagjafastúss eftir tónleikana og ég náði að rædda einhverjum gjöfum sem ég var ekki komin með. Hef aldrei lent í því áður að það er svona stutt í jólin og ég bara ekki búin að gera helminginn af því sem ég ætlaði að gera. Fussumsvei. Það var nú samt gott að ná að gera svona mikið jóla jóla þessa helgina. Jú því sunnudagurinn fór einmitt í meiri jólabakstur í Hagaselinum og svona aðeins meira jólagjafastúss. Núna er búið að baka tvær smákökusortir, klára sörurnar og baka sælgætiskökuna fyrir jóladag upp í hagaseli. Mamma hefði viljað baka meir en ég var bara búin á því og plús þá fer ég út á annan í jólum svo ég á örugglega eftir að baka e-ð með henni systur minni þar. Svo þetta fannst mér vera nóg í bili.
Fyndna er að ég hef ekki haft lyst á þessum kökum og er þess vegna ekki einu sinni búin að smakka neitt að því sem við bökuðum. Nema lagkökuna og döðlubrauðið en það var mamma búin að gera helgina áður. Palli smakkaði kökurnar samt og finnst þær voða góðar held ég. Honum finnst vanta hálfmánanna en hann ólst víst upp við þá. Þeir voru aldrei bakaðir á mínu heimili en fjölskyldan hans Grétars (besta vina míns þegar ég var að alast upp) sem bjó hliðin á okkur bakaði þá alltaf svo ég fékk bara hjá þeim. Hef aldrei lagt í að gera þá sjálf. Kannski ég prufi það núna eða á næsta ári svona fyrir kallinn.

Núna er ég samt alveg búin á því. Er með einhverja magakveisu og líður ekkert rosalega vel. Samt gæti ég verið verri veit ég. Svo margt leiðinlegt að ganga. Ég er því bara í rólegheitunum heima að slappa af og pakka inn jólagjöfum og föndra. Mjög notalegt. Alveg nauðsynlegt að leyfa sér bara að slappa af þegar maður er e-ð svona slappur líkamlega. Vona samt að ég verði búin að ná þessu úr með fljótlega svo ég geti haldið áfram að gera það sem ég á eftir áður en jólin skella nú bara á. Það eru nú bara 6 dagar til jóla. Svei mér þá.

Danaveldi, Bruce Springsteen tónleikarnir og rauðir snákar

Mikið er ég búin að vera ódugleg við að blogga e-ð. Er reyndar búin að vera mjög lítið í tölvunni þessar seinustu vikur. Er meira að dunda mér enda langt liðið á desember og það er nú alveg aðal föndurmánuðirinn.

Danmörk var æði. Við náðum að eiga góðan tíma saman og gera alls konar hluti á þessum fjórum dögum. Tónleikarnir með Bruce og the E street band voru náttúrulega bara stuð! Það eru eiginlega ekki til orð til að lýsa þeim því þetta var svo mikið oplevelse. Bruce spilaði alveg fullt af gömlu hitturunum og Palli fékk meir að segja að heyra lagið sem honum langaði mest að heyra en bjóst ekki við; Darkness on the egde of town.
Svo tók Bruce the river sem er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Þegar við komum heim fann Palli þetta video frá tónleikunum á youtube. Rosagaman að hlusta á þetta. Allir að syngja með og alveg mega rómó e-ð. Ég og Palli sungum auðvitað bæði með líka. Flottast var samt eiginlega þegar uuu kaflinn aftast í laginu kom því þá hætti Bruce að syngja og salurinn tók bara við og svo kom hann inn í og man hann er svo góður söngvari. Úff. Þeir sem þekkja Bruce hérna vita hvaða kafla ég er að tala um. Man þetta var svo flott.

Þau spiluðu í alveg rúma 2 tíma og í stanslausu stuði allan tímann. Ég mæli með að allir sem fíla Bruce Springsteen fari að sjá hann live ef þeir eru ekki þegar búnir að því. Ég og Palli erum svo pottþétt að fara aftur einhvern daginn. Þetta var svo gaman.

Við gerðum líka fleiri hluti í Danaveldinu. Við hittum Villa sem býr þar og héngum með honum, fórum á rosalega flottan og stóran flóamarkað í Bella center (haha núna hugsa ég bara til þín Saló þegar ég hugsa um Bella center!), fórum í tívolíið en samt í engin tæki því elskulegi kallinn minn er með svo lítið hjarta en í staðinn skoðuðum við okkur bara um því það var allt svo jólalegt og ég keypti mér karmelluepli og rosalega sætan fílabangsa, síðan fórum við og versluðum soldið aðallega samt bara ég því ég komst í NoaNoa sem er alveg pottþétt uppáhaldsbúðin mín. Aumingja Palli varð að bíða í klukkutíma á meðan ég mátaði og mátaði. Hehe. Hann er samt svo mikið æði. Var alveg rólegur og bara voða ánægður að heyra að ég hafði fengið mér svo margt fínt þarna inni á meðan hann beið. Hehe.

Að lokum fórum við í dýragarðinn á seinasta deginum okkar. Það var rosalega gaman en samt eiginlega bara af því að við hittum einhvern gaur sem leyfði mér að halda á slöngu og snáki á meðan hann talaði í 20 mín á dönsku um slöngur og snáka og hvernig mar ætti ekki að vera hræddur við þau og e-ð. Rosa áhugavert en ég verð að viðurkenna að það var pínu erfitt að hlusta þegar snákurinn var að skríða upp handlegginn minn og reyna að komast upp í hálskotið mitt. Íkk. Ég var samt rosa ánægð að hafa þorað því þetta var rosa áhugavert og bara losaði mann soldið við þessa fóbíu sem maður hefur fyrir þessum dýrum. Ég þarf varla að segja það að Palla lét sér nægja að horfa á mig halda á þeim en treysti sér ekki í það sjálfur. Hehe. Kallinn minn er með minnsta en sætasta hjarta í heimi. Hehe.
En já þessi ferð var mega stuð. Ég er rosalega ánægð að við skelltum okkur því þetta var svo gott fyrir okkur bæði að komast svona eitthvert burt og eiga svona almennilegan tíma saman. Rosa hollt. Komum heim enn ástfangnari af hvor öðru en við vorum þegar og bara svaka ánægð bæði. Ekkert nema sátt með þessa ferð.

Kaupmannahöfn, Bruce Springsteen og Herra Skröggur

Á morgun, það er í nótt, þá höldum við hjónin til Danmerkur. Við ætlum að skella okkur á Bruce Springsteen tónleika annað kvöld í Kaupmannahöfn sem við erum bæði alveg þvílíkt spennt fyrir. Ég held að það verði MEGA stuð! Vúhú!

Við ætlum líka að borða góðan grænmetismat á RizRaz eða RisaRass eins og ég kallaði þetta þegar ég var í heimsókn hjá Sigga Té vini mínum fyrir tveimur árum. Ég hef ekki farið til Kaupmannahafnar síðan þá sem var um sumar og ég get ekki beðið eftir að fara núna og upplifa hana í jólabúningnum. Að vísu verður Palli aka Herra Skröggur með mér í för en ég læt það ekki á mig fá frekar en fyrri daginn. Hehe. Ég segi bara eins og mágkona mín Saló sagði um daginn um sinn kall, sem er líka óttalegur Skröggur í sér, “Aumingja Herra Skröggur sem ég bý með verður bara að kenna sjálfum sér um að hafa gifst jólabarninu mér.” Fyrir utan “gifst” partinn þá held ég við séum í mjög svipuðum sporum. Hehe. En eins og ég sagði þá hefur þetta voðalítið áhrif á mig. Ég dreg hann bara með mér á jólamarkaðinn í Bella center og í tívolíið og í Strikið í smá verslunarleiðangur og ef ég þekki hann rétt þá mun hann röfla smá en ég veit að hann vill miklu frekar gera þetta með mér en að vera einhvers staðar einn. Hann er soldið mikill vitleysingur þegar kemur að þessu. Hehe. Elskan. Ætli við séum það samt ekki bara bæði því þegar ég hugsa um það þá vil ég miklu frekar hafa hann röflandi með mér en að gera hlutina ein. Hehe. Við erum greinilega bara alveg jafnmiklir vitleysingar þegar kemur að þessu. Hehe.

En jæja en nóg um ferðina í bili.

Ég sé ykkur hress í næstu viku.