Archive for September, 2007

Ein í hlutlausum

Dagurinn er búinn að líða hjá mér og ég hef ekki gert neitt. Amk þá líður mér þannig. Ég er einhvern vegin ekki búin að komast í gírinn í dag. Bara búin að vera í hlutlausum.

Dreif mig í ræktina áðan til að aðeins bæta fyrir ódugnaðinn en allt kom fyrir ekki. Ég var voða dugleg og tók duglega brennslu og alveg fullt af magaæfingum en það virtist ekki vera nóg. Núna er ég komin heim og er ennþá í voða mínus.

Skil ekkert í þessu. Er bara alveg mega leið af einhverri ástæðu og bara næ ekki að hrista það af mér.

______________________________________________

Hér er eitt lag sem er í miklu uppáhaldi hjá mér núna og bara alltaf enda með einni af uppáhaldshljómsveitinni minni. Tjékkiði á því.

Small brown bike - The outline of your hand still remain on my hand

Dautt sjónvarp, lífstílsbreytingar og hann er kominn heim

Sjónvarpið okkar dó í gærmorgun. Palli er miður sín yfir því og reynir reglulega að kveikja á því í þeirri von um að það muni hafa lagast af sjálfu sér. Ég er aftur á móti alveg í skýjunum yfir þessu. Finnst ég eyða alltof miklum tíma fyrir framan þennan kassa hvort eð er svo ég er bara ánægð að fá pásuna. Auðvitað fer það í viðgerð á endanum. Það mun kosta peninga sem við eigum ekki og ég er nú ekkert svo ánægð með það en það kostar víst að lifa og halda “látlausu heimili” eins og þeir kalla það í lögunum.

Ég byrjaði í leikfimi í vikunni. Þetta er partur af breyta um lífstíl átakinu mínu. Ég og Oddný ákváðum að skella okkur saman til einkaþjálfara. Hún var hjá honum seinasta vetur og hafa ófá kílóin fokið hjá henni síðan. Hún er ekkert búin að vera núna í soldinn tíma svo við ákváðum að það væri alveg frábært fyrir okkur að fara bara saman.
Ég er sem sagt komin í einkaþjálfun. Við mætum hjá Jóni (þjálfaranum) þrisvar í viku og svo reynum við að fara að brenna á móti eins oft og við getum. Við erum báðar búnar að vera MEGA duglegar í þessu. Við erum klukkan 6 á mánudögum og miðvikudögum og þá dugar ekkert annað en að fara á fætur klukkan 5 til að borða og vera mætt í upphitun áður en púlið hefst. Strætó er ekki byrjaður að ganga svona snemma svo til að mæta þarf ég bíl. Ég fékk m&p til að lána mér bílinn sinn tvisvar í viku svo ég komist nú örugglega og við erum að reyna þetta núna. Vonandi gengur þetta eins vel og í þessari viku.
Jájá. Annars er vikan að klára og ég er búin að mæta í gymið 5 sinnum. Það er alveg fullt fyrir mig svo ég er alveg voðalega ánægð. Vonandi næ ég að halda þessu við þar sem ég finn hvað þetta er að gera mér mega gott. Plús þá er ég staðráðin að breyta um lífstíl og komast í form. Til þess þarf ég að vera extra dugleg. Sérstaklega svona fyrst. Það er víst erfiðast að byrja og ég er byrjuð svo nú er bara að koma þessu í vanann.

Ég byrjaði í fleiru í vikunni. Ég fékk nefnilega hann Bjögga Gísla til að kenna mér á gítar einu sinni í viku. Hann kennir sko við tónskólann hans pabba upp í hagaseli. Ég mætti hress og kát þangað á þriðjudaginn og lærði alveg fullt strax í fyrsta tíma. Er búin að vera að mastera heimavinnuna á fullu alla vikuna og hlakka til að fara í næsta tíma og læra meir.

Annars gengur alveg rosalega vel í lögfræðinni. Ég kláraði mína fyrstu kennslubók í lögfræði um daginn. Mér fannst það voða merkilegt en því miður deildi engin þessum áhuga með mér.
Í næstu viku fer ég svo í seinasta tímann í Inngangur að lögfræði en þarf samt að bíða fram í október til að taka lokaprófið. Við fáum nú lítið frí þar á milli þar sem kennsla í Almennri lögfræði hefst strax daginn eftir að kennslu líkur í innganginum og svo byrjar Evrópuréttur strax daginn eftir það. Þá fyrst fer þetta allt á fullt. Ég byrjaði að lesa í Almennu um helgina og líkar vel. Mikil vinna framundan en ég hef amk áhugann og það skiptir miklu finnst mér. Er líka svo heppin að vera búin að mynda tengsl við nokkra eldri nemendur og ég held að það muni hjálpa mér mjög mikið. Alltaf gott að hafa einhvern sem hefur þegar gengið í gengum það sem þú ert að ganga í gegnum til að tala við. Plús þá fékk ég gamlar glósur og það er engin að fara að segja mér að það muni ekki hjálpa mér e-ð.

————————————

Lokafréttir.
Tryggvi minn mætti hress og kátur á Leifstöð á aðfaranótt föstudagsins. Hann er sem sagt komin til landsins og enn betra er að hann er kominn til að vera. Í bili amk. Það vekur augljóslega upp mikla kátínu hjá mér þar sem ég er búin að sakna hans alveg rosalega síðan hann fór í lok júlí. Við átum saman grænmetislasagna og hjónabandssælu (mín fyrsta ever og hún var vegan!) á föstudeginum sem var alveg rosalega notalegt. Hann hélt svo í Þórsmörk með mömmu að njóta haustlitanna þarna. Hann kemur svo í bæinn í kvöld svo ég fæ að sjá hann á eftir. Það er ekkert smá gaman að fá hann heim. Ræð mér varla af kæti.

Einu sinni var ég töffari

Einu sinni var ég töffari og stakk af til Evrópu að bakpokaferðalagast. Það var stuð. Ég fór m.a. til Svíþjóðar og töffaraðist um á hjólabretti þar. Voða svöl.

hanna_sweden

Já ég var augljóslega töffari þarna.

Hvað varð eiginlega um þennan töffara? Hvar er hann núna?

Í lögfræði í háskólanum? ég veit ekki..

Oreo pizza (jú þú heyrðir rétt) er það nýjasta í U$A

Í gær vorum við Palli í sakleysi okkar að horfa á the daily show með jon stewart þegar við heyrum allt í einu minnst á e-ð sem ég trúði bara ekki að væri til.. við urðum að pása þáttinn til að fletta þessu upp því við bæði gátum ekki trúað okkar eigin eyrum en jú það reyndist vera rétt sem við heyrðum.. nefnilega að dominos pizza út í U$A er komin með nýja eftirrétta pizzu sem heitir Oreo pizza (!!!) og er að seljast eins og heitar lummur þarna úti sérstaklega þar sem dominos auglýsir þessa nýju pizzu sem aðeins til í ótakmarkaðan tíma!

Hérna er gripurinn:
oroepizza
(Ef myndin birtist ekki þá getið þið séð þetta ferlíki hér)

Það er bara eins og bandaríkjamenn séu búnir að taka það sem við köllum “mat” á nýtt level! Ég sver það. Ég meina ég man þegar ég var úti og fór í stórmarkaðina þarna þá var svo margt sem ég sá þar sem ég myndi varla kalla “mat” amk ekki í mínum skilningi.

Ég er samt ekki frá því að þetta sé eitt það svakalegasta sem ég hef séð í langan tíma.
Kemst eiginlega ekki yfir þetta og með þessu meina ég bæði að það sé til svona pizza og að hún seljist svona vel.

Svo furðar fólk sig á því hvað bandaríkjamenn eru stórir.

það er gestur hjá okkur í hagamelnum

kisi

Þessi litla kisustrákur elti okkur Palla heim eftir Sköllfestið í gærkvöldið. Hann neitaði að leyfa okkur að yfirgefa sig á tröppuna fyrir utan hjá okkur svo við enduðum að leyfa honum að koma aðeins inn svo við gætum skoðað hann aðeins betur. Hann reyndist ómerktur og ekki með neina ól. Hann var alveg glorsoltinn svo ég rölti út í búð og keypti handa honum þurrmat sem hann gleypti í sig og svo fékk hann að vera hérna hjá okkur í nótt.

Hann er búinn að vera hjá okkur í allan dag. Kattholt setti upp auglýsingu fyrir okkur því það er ekki hægt að trúa öðru en einhvers staðar sé einhver að sakna þessa litla krílis en í millitíðinni ætlar hann bara að vera hérna hjá okkur.

Hann er alveg mest sætur sko. Voða kelinn og vill alltaf láta klappa sér og klóra. Maður má eiginlega ekki vera að gera neitt annað en að knúsa hann. Hehe.

kisi_knusHérna er hann hjá Palla. Honum finnst rosagott að liggja á bakinu hans eða bara vera mikið þétt upp við hann. Þeir lögðu sig einmitt saman tveir upp í rúmi áðan. Algjört krútt. Báðir.

kisi_og_palli

Hann er sem sagt núna kominn með tímabundið heimili hérna hjá okkur á hagamelnum og virðist una sér rosalega vel hérna. Ég fór út í búð í dag og ræddaði kattarsand og einhverju dóti fyrir hann til að leika með. Hann er sko ekki búinn að hætta að leika með það síðan ég lét hann hafa það fyrir svona 40 mín. Hehe. Algjört rassgat.

Lag fyrir Erlu

Ég var að lesa bloggið hennar Erlu minnar þar sem hún minntist á hljómsveitina Iron and wine. Hún var víst að kynnast henni nýlega og þegar ég las það ákvað ég að ég yrði að setja eitt lag hérna með þeim fyrir hana. Þetta lag er í miklu uppáhaldi hjá mér en það var hún Fríða mín sem kynnti mig fyrir því þegar hún setti það á blandspóluna sem hún gaf mér í jólagjöf seinustu jól en henni hefur verið alveg nauðgað í kassettutækinu mínu síðan þá og þá sérstaklega þessu lagi þ.e. þangað til Palli ræddaði disknum fyrir mig :)

Svo Erla mín þetta lag er fyrir þig.

Iron and Wine - In my lady’s house

Fyrsta vísindaferð og kennsluvika númer 2

Á föstudaginn fór ég í mína fyrstu vísindaferð. Ég var nú soldið smeik að skella mér í svona svaka ferð með alveg engan sem ég þekkti nema Ástu (stelpan sem ég hlammaði mér hliðin á í fyrsta tíma) en ég var samt staðráðin í að fara enda leit ég á þetta sem alveg rosalega gott tækifæri til að kynnast fólkinu sem er með mér í lagadeildinni og bara mynda ný tengsl og svona.
Ég varð sko alls ekki fyrir vonbrigðum með þessa ferð! Hún var algjört success! Ég ætla ekkert að drepa ykkur úr leiðindum um hvað við gerðum í þessari ferð enda margt voða nördalegt fyrir fólk sem er ekki í þessari deild eða hefur áhuga á þessu námi.. hehe.. en þið megið vita það að það var alveg MEGA stuð!
Ég var náttúrulega alveg bláedrú þarna eins og alltaf en var samt hin hressasta allt kvöldið. Ég var dugleg að tala við fólk, kynna mig, dansa, dj-a, fá aðra til að dansa með mér, syngja og bara vera hress! Ásta sagði mér í morgun að það hefðu einhverjir haft orð á það við hana hvað ég væri hress og kát og mér finnst það bara fyndið og gott að heyra :) .

Í dag hófst kennsluvika númer 2. Ég er miklu meira tilbúin fyrir þessa viku en ég var fyrir seinustu. Komin á meira skrið og líka bara mjög að finna mig í þessu námi og áhuginn fyrir námsefninu alltaf að aukast meir og meir.
Eitt skemmtilegt sem gerðist í ferðinni sem ég verð að segja ykkur frá. Ég rakst nefnilega á gamla vinkonu í ferðinni á föstudaginn sem var víst líka að hefja nám í lagadeildinni en hafði verið úti og þess vegna hafði ég ekki séð hana í fyrstu vikunni. Hver var þetta spyrji þið? Jú hún Harpa mín! En hún var ein besta vinkona mín fyrir rúmum 3 árum þegar við vorum að vinna í Smárabíó saman! Ótrúlegt! Við höfum ekkert talast almennilega í alveg rúm 2 ár svo þið getið ímyndað ykkur hvað ég var ánægð þegar hún birtist bara allt í einu í rútunni á föstudaginn! Við höfðum sem sagt alla ferðina til að catch up og það leið sko ekki langur tími áður en ég fann að við vorum komnar aftur á sama stað og við vorum hérna áður fyrr á. Ég er ekkert smá ánægð að fá hana svona aftur í líf mitt og er eiginlega bara ennþá að komast yfir það hvað það er fyndið að við séum hérna báðar. Hehe. Ótrúlegt.

Já það verður líka að segjast að þetta nám lítur alveg töluvert betur út félagslega séð eftir að hafa fundið hana Hörpu mína hérna og líka bara eftir ferðina því ég kynntist svo ótrúlega mikið af fólki í henni. Ótrúlega ánægð að ég fór í stað þess að hanga heima. Þetta var akkúrat sem ég þurfti. Mynda tengsl við fólk sem er að upplifa það sama og ég eða hefur upplifað það sama og ég er að gera með að vera að hefja þetta þrusunám. Hjálpar ekkert smá.

Talandi um námið. Ætli ég fari ekki að halda áfram að lesa núna. Hehe. Alveg nóg eftir fyrir morgundaginn. Ég segi ykkur meira af mér seinna.

Bruce er og verður maðurinn

Það má vel vera að hann sé jafngamall pabba mínum en það er bara þannig að þessi maður, eins og ameríkanarnir myndu orða það, “still gots it”. Og með “it” þá meina ég bæði tónlistalega séð og.. well þið náið hvert ég er að fara með þetta..

Hérna er myndbandið við Radio Nowhere sem er fyrsti singulinn af nýju plötunni hans Magic sem kemur út í U$ofA í byrjun október. Ég er alveg nett að fíla þetta lag og myndbandið. Hlakka mikið til að heyra plötuna alla þegar hún kemur hingað til lands og svo ég nuddi nokkrum hérna um nasir þegar ég sé hann úti í Köben í vetur.

Ég veit að það er ljótt en..

Ég bara VERÐ að fá að monta mig pínu!

Ég og Palli fengum nefnilega miða á Bruce Springsteen í Kaupmannahöfn í desember! Við erum að fara að sjá hann með E street bandinu (öllu upprunalegu fyrir ykkur sem ekki vita) og ég er að farast ég er svo spennt og ánægð! Þetta verður sko alveg draumur í dós fyrir okkur hjónin! Verst að þetta er í miðjunni á prófavikunni minni en vonandi þá ræddast þetta. Ég er amk að farast úr spenningi núna. Trúi því varla enn að við höfum fengið miða!

Hérna kemur svo eitt lag með Brucearanum í lokinn. Þetta er í algjöru uppáhaldi hjá mér og Palla þessa dagana. Njótið heil.

Bruce Springsteen - One step up