Það sem ég skil ekki með þessi mótmæli er margt. Aðallega er það þó tvennt sem stendur upp úr. Í fyrsta lagi af hverju fréttaflutningur frá þessum mótmælum er svona rosalega gagnrýnin og neikvæður og í öðru lagi af hverju í ósköpunum starfsfólk hótel borgar og stöðvar 2 fannst sig knúið til að meina mótmælendum inngöngu inn á hótel borg. ég skil bara ekki hvað það var að hugsa að setja sig í eitthvert valdasæti. Hélt það að það væri orðið “lögreglan” og mætti bara gera hvað sem er við mótmælendur? vissi það ekki að ef e-ð hefði gerst hefði það ekki haft mikinn rétt og þar af leiðandi geta verið kært fyrir t.d. líkamsárás.
Já og vissi það ekki að þessir mótmælendur voru að mótmæla einhverju sem snertir okkur öll þar á meðal þau. Bara af því að það hefur greinilega haldið vinnu sinni þá þýðir það ekki að kreppan sé ekki að hafa áhrif á þau. Af hverju það fann sig knúið til að verja vinnustað sinn með valdi og handalögmáli skil ég ekki?!?
Ef ég hefði verið að vinna á hótel borg þá hefði ég bara haldið áfram að elda eða þrífa eða gera það sem ég átti að vera að gera og leyft mótmælendunum bara að gera það sem þeir komu til að gera; mótmæla. Ég er farin að hliðrast að því að eina ástæðan að þetta fór e-ð úr böndunum er af því að óbreyttir borgarar (starfsfólk hótel borgar og stöðvar 2) fóru að skipta sér að og koma fram við mótmælendur eins og það væri yfir þá komið og hefðu eitthvert vald yfir þeim.