Eins og ekkert hafi í skorist
Thursday, January 22nd, 2009Í veikum fjölskyldum er yfirleitt reynt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist, sama hvað gengur á. Unglingurinn leggur herbergið sitt í rúst, en áfram er haldið eins og ekkert hafi í skorist. Fjölskyldufaðirinn hverfur dögum saman á fylleríi. Áfram er haldið eins og ekkert sé. Kennarar í skóla yngsta barnsins gera barnaverndaryfirvöldum viðvart. En hvað vita kennararnir, ekki neitt, þeir eru asnar. Fjölskyldan er í góðu lagi og ekkert amaði að ef ekki væru vitleysingar þarna úti sem gera vitleysur.
Á svipuðum forsendum vilja stjórnmálamenn halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Þeir beita sömu meðulunum við nýjum sjúkdómum. Á það bæði við um stjórnarliða og stjórnarandstöðu. Alþingi eigi að starfa áfram eins og ekkert hafi í skorist. Og alls ekki má láta fólkið fyrir utan stöðva nokkuð sem þar fram fer. Það væri sama sem uppgjöf.