Eins og ekkert hafi í skorist
Í veikum fjölskyldum er yfirleitt reynt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist, sama hvað gengur á. Unglingurinn leggur herbergið sitt í rúst, en áfram er haldið eins og ekkert hafi í skorist. Fjölskyldufaðirinn hverfur dögum saman á fylleríi. Áfram er haldið eins og ekkert sé. Kennarar í skóla yngsta barnsins gera barnaverndaryfirvöldum viðvart. En hvað vita kennararnir, ekki neitt, þeir eru asnar. Fjölskyldan er í góðu lagi og ekkert amaði að ef ekki væru vitleysingar þarna úti sem gera vitleysur.
Á svipuðum forsendum vilja stjórnmálamenn halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Þeir beita sömu meðulunum við nýjum sjúkdómum. Á það bæði við um stjórnarliða og stjórnarandstöðu. Alþingi eigi að starfa áfram eins og ekkert hafi í skorist. Og alls ekki má láta fólkið fyrir utan stöðva nokkuð sem þar fram fer. Það væri sama sem uppgjöf.
February 3rd, 2009 at 10:39 pm
Ætli viðkvæmir stjórnendur hafi ekki staðist þennan lestur
February 17th, 2009 at 10:55 pm
Svo að allt öðru: mig grunaði að þú yrðir ekki lengi vinnulaus. Ég er ánægð með snör handtök heilbrigðisráðherra að enda strax komugjöld á spítala. Gangi þér vel í jobbinu!