Kæri Björgólfur

Björgólfur!

mig langar svo að tala við þig

 

útskýra mína hlið

og hvernig ég sé þetta

 

ég vona ég sé ekki að trufla

 

ertu upptekinn þessa dagana?

 

Björgólfur,

ég er blaðamaður

á mogganum

 

sem þú átt

eða áttir

eða hvað?

 

geturðu sagt mér, Björgólfur

hvað verður um moggann?

 

mér finnst svo óþægilegt að vita það ekki

 

***

 

Björgólfur,

þetta kaupæði

sem þú sagðir í mogganum

að hefði runnið á alla íslendinga

 

ég kannast ekki við það

 

ég á ekki sumarhús

eða hjólhýsi

eða jeppa

 

 

Björgólfur,

ég keypti mér aldrei flatskjá

ég á ekki einu sinni sjónvarp

 

það er ópíum fólksins

held ég

og fyrir framan sjónvarpið

slokknar á öllu

 

það er gott, Björgólfur

mjög gott

og hættulegt

stórhættulegt

 

ég á reyndar örbylgjuofn

þú nefndir hann samt ekki

 

***

 

Björgólfur,

ég hef alltaf verið dugleg að vinna

ég vann í sjoppu

ég þjálfaði fótbolta

ég vann á lager

ég kenndi börnum

ég raðaði trópí í hillur

 

ég reyndi einu sinni að selja pressuna

en þá hrópaði á mig gamall maður

að pressan væri rusl

 

ég hætti að selja pressuna

 

þá hélt ég að gamlir menn hefðu alltaf rétt fyrir sér

 

hafa þeir það?

 

Björgólfur,

ég las við þig viðtalið

og mig langar að segja

að ég skil þig

 

ég veit hvernig tilfinning það er

að hrópað sé á þig

eins og þú sért höfuð alls ills

 

ég er blaðamaður, Björgólfur

 

seðlabankinn, fyrirtæki, stjórnmálamenn, eftirlitsstofnanir

og ekki síst fjölmiðlar

 

það sagði þorgerður katrín

 

og ég hélt allt í einu að ég hefði skemmt allt

 

***

 

mér fannst alltaf skrítið að fólk keypti allt á lánum

og mér fannst alltaf skrítið að menn væru í stanslausu spili

 

matadori, Björgólfur

 

mér þykja einkaþotur asnalegar

en mér var alveg sama þótt þú værir í keppni

við hina strákana

 

ég hef spilað matador

 

ég veit hvernig tilfinning það er

að vinna

ég vann næstum því alltaf

 

en ef ég tapaði

þá var það allt í lagi

 

ég fékk mér bara ristað brauð

og kakó

 

tvö glös af kakói

það var eftirlætið mitt

þegar ég var lítil

 

þegar ég var lítil

og spilaði matador

og fékk kakó

 

stundum

 

***

 

sjónvarpsleysið, Björgólfur

það bjargaði mér ekki

 

það slokknaði líka á mér

 

ég áttaði mig ekki á því

að ég þyrfti að borga fyrir matadorið

sem ég tók ekki þátt í

 

það á ekki að fara illa með almannafé

 

og ég er sammála, Björgólfur

ég er sammála því að það eigi ekki að bruðla með peninga

hvorki almanna né eigin

 

en samt sagði ég ekki neitt

þegar þú keyptir austurstræti og bankastræti og aðalstræti og hafnarstræti og pósthústræti og laufásveg og laugaveg og sólvallagötu og hávallagötu

 

fyrir peningana mína

 

peninga sem voru faldir bak við orð sem ég skildi ekki

 

***

 

áramótaheitið mitt, Björgólfur

var að reyna að skilja peninga

 

ég fór á námskeið og lærði um stýrivexti og eigið fé og spákaupmennsku og lánshæfiseinkunn og skortstöðu og skortsölu og vísitölu og verðtryggingu

 

og ég reyndi að spyrja eins mikið og ég gat

og alltaf létu menn eins og þeir væru með allt á hreinu

en gátu samt ekkert útskýrt

 

Björgólfur, maður talar ekki skýrar

en maður hugsar

 

matadorið ykkar var alltof flókið

svo flókið að það kunni enginn reglurnar

og svo asnalegt að allir töpuðu

 

og nú þarf ég að borga

aftur

 

***

 

ég veit alveg, Björgólfur

að það verður í lagi með mig

ég veðsetti engar götur

 

en Björgólfur,

það verður ekki allt í lagi með alla

og það finnst mér sárt

 

 

ég veit alveg

að við tókum öll þátt í rétttrúnaðinum

 

við sungum með

trallalalalalala

lalalalala

 

ég söng falskt

til að ögra kórnum

 

og fannst ég vera að mótmæla

 

en ég söng samt

 

TRALLALALALA

LALALALA

 

LALALA

 

LALLALALALA

 

***

 

og ritstjórinn minn gamli

hann sagði að það væru hræðilegir hlutir að gerast

í fjármálaheiminum

 

ég hlustaði

en ég skildi hann ekki

 

og ég viðurkenni

að stundum hélt ég hann væri orðinn smá klikk

 

hann var stríðsmaður, Björgólfur

harðsnúinn kaldastríðsmaður

alla tíð

og ég hélt hann vildi vera það áfram

 

ég er ekki stríðsmaður, Björgólfur

mér finnst best ef allir hjálpast að

 

***

 

Björgólfur,

pabbi segir að þú sért fínn kall

og bubbi segir það líka

 

ég trúi þeim, Björgólfur

ég hitti þig einu sinni

og ég man að það kom mér svo á óvart hvað þú varst hress

 

ég hélt að maður

sem ætti svona mikla peninga

gæti ekki verið hress

ekki frjáls

 

Björgólfur, er ekki vont að eiga heimavörn?

 

***

 

Björgólfur,

ég veit að þú varst duglegur að vinna

eins og ég

 

og líklega vannstu lengri vinnudag

 

mín vegna hefðirðu alveg mátt, Björgólfur

fá tvöfalt hærra kaup

 

og kannski aðeins meira en það

vegna ábyrgðar

 

 

 

Björgólfur,

ég var eins árs þegar davíð oddsson varð borgarstjóri

síðan forsætisráðherra

seðlabankastjóri

 

og hann er líka skáld

 

ég treysti honum ekki, Björgólfur

en samt hlusta ég

þegar hann talar

 

því ég þekki röddina hans svo vel

 

Björgólfur, hann var alltaf í skaupinu

 

afmælisbarn með stóra köku

og eina sneið fyrir gestina

 

Björgólfur,

mig langaði ekkert í köku

ég hafði það bara fínt

í mínu flatskjásleysi

 

og þannig vil ég hafa það áfram

 

***

 

Björgólfur,

ég vona að forseti gefi þér upp sakir

og öllum hinum

 

égerreiðútíykkurþvímiglangaðiaðnotaspariféðmittíferðtilindlandsenekkitilaðborganiðurskuldirsemégskilekkiafhverjuerutilen

 

ég losna við reiðina

 

 

og ég skal borga, Björgólfur

 

ég skal borga með einu skilyrði

 

að þetta gerist ekki aftur

 

að við hjálpumst að

við að byggja upp samfélag

 

saman í þessu

 

og við getum spilað matador

um helgar

með pappírspeninga

og drukkið kakó

 

saman í þessu

 

ertu til í það, Björgólfur?

 

ertu til í það?

30 Responses to “Kæri Björgólfur”

  1. Þorbjörn Says:

    Svo sterkt.

  2. G. Pabbi Says:

    flott, mjög flott dóttir góð

  3. Arnar Eggert Says:

    Frábært Halla. Frábært!

  4. Oddur Ólafsson Says:

    Þakka þér fyrir.
    Þetta er tær snilld.

  5. Alda Says:

    Snilld!

  6. Halldóra Says:

    Glæsilegt!

  7. Mist Says:

    Frábært Halla!

  8. Valtýr Reginsson. Says:

    Stórbrotin ræða.

    Takk Halla.

  9. Bergrisinn Says:

    Glæsilegt .. rosalega vel gert :)

  10. Gunnar Grímsson Says:

    Svo satt, svo rétt, svo sammála! Nema eitt: Ég borga ekki!

  11. Berglind Says:

    Sú gamla kann lagið á þessu! :)
    Bravó!

  12. Sigrún Says:

    Þrtta var áhrifarík snilldarræða og afar vel flutt:)

  13. mhg Says:

    Einmitt!

    (klapp klapp klapp)

  14. Hörður Says:

    15 mín. frægð………….

  15. Jens Says:

    Rangt, amk 30 mín, margar 30 mín.

  16. Egill Örn Says:

    Þetta var skemmtileg lesning. Góður penni hér á ferð!

  17. Karl Ferdinand Says:

    Glæsilegt Halla, góð ræða og vel flutt!

    TRALLALALALA

    LALALALA

    Schniilllld! :-)

  18. Hafþór Baldvinsson Says:

    Frábær ádeila með fallegri, næmri og skemmtilegri fléttu. Kakó er gott. En af hverju að fljúga á þyrlunni til að fá sér kakó þegar það er til á heimilinu, æ sorry heiliin voru ekki vistarverur. Þau voru sýningarhallir fullar af dýrum málverkum, margnota marmara, glás af gleri eins og ég sá í Náttúrusafninu í gamla daga. Öllu var pakkað inn í gler svo það skemmdist ekki.
    En úr því ég er hér langar mig að nefna að þegar nýju bankarnir greiddu úr markaðssjóðum eldri bankanna voru viðhöfð vinnubrögð sem enginn virðist taka eftir. Ég ákvað fyrir 3 mánuðum að byrja að spara og mér var ráðlagt að fara í s.k. reglulegan sparnað. Í honum fólst að ég yrði að leggja til ákveðna upphæð í s.k. Skammtímasjóð hjá Kaupþingi sem yrði verðtryggður þar sem í honum væru engin hlutabréf heldur aðeins ríkissskuldabréf, skuldabréf lífeyrissjóða, ríkisvíxlar ofl slíkt. Þegar kom að útgreiðslu var bankinn búinn að færa á milli s.k. Peningamarkaðssjóðs (en í honum voru hlutabréf að 1/3 og því meiri áhætta) yfir til Skammtímasjóðs hlutabréf sem voru verðlítil eða jafnvel verðlaus. Þessi aðgerð fól í sér að útgreiðsluhlutfall Peningamarkaðssjóðs varð hærra eða 86% en Skammtímasjóðs 75%. Það er rétt að taka fram að þeir sem lögðu fyrir í Peningamarkaðssjóðinn voru efnamenn og lágmarksinnborgun 1 milljón. Skammtímasjóður var hugsaður fyrir þá sem vildu leggja e-ð smáræði til hliðar mánaðarlega. Ég tapaði ekki miklu enda lítt efnaður maður og græt það ekki en siðferði þeirra sem tóku við nýju bönkunum virðist ekkert skárra en hinna.
    Því hlakka ég til næsta bréfs sem verður vonandi stílað á Finn Sveinbjörnsson bankastjóra Nýja Kaupþings.
    Áfram með kakóið.

  19. Kúarektorinn Says:

    Er það ekki alveg með eindæmum týpiskt að spurt sé í fyrsta erindi um velferð Moggans.

    Blaðamenn standa frammi fyrir margskonar tvíræðni þessa dagana er varðar eigin atvinnuörygggi.

  20. Helga Says:

    Magnað Halla, alveg hreint magnað.

  21. Ingibjörg Þórðar Says:

    Glæsilegt Halla. Sá brot úr þessum flutningi þínum í sjónvarpinu. Get ég ekki nálgast þetta allt á netinu? Það verður að taka þessa fundi upp fyrir okkur landsbyggðafólkið.
    Annars finnst mér þetta frekar vera ljóð en ræða… og þá meina ég gott ljóð!
    Baráttukveðjur frá Norðfirði

  22. Halli Says:

    Mjög flott. Virkar betur svona í heild sinni heldur en það gerði sundurklippt í sjónvarpsfréttum.

    Bravisimo!

  23. Sóley Says:

    Halla. Hvenær ætlum við að giftast eiginlega?

  24. Halla Says:

    Þakka ykkur öllum!
    Ingibjörg, þetta fer á Netið, fylgstu með borgarafundur.org. Ertu svo ekki á leið í bæinn?

    Sóley, já hvenær?!

  25. Lína Says:

    Bravó!

  26. Rósa María Says:

    Gæsahúð. Snilld.

  27. Maggan Says:

    Ef þú giftist ef þú bara giftist þá giftistu bara mér

  28. guðný anna Says:

    Þetta er hrein og tær snilld, Halla!

  29. Þór Says:

    Við hvaða lag er þetta sungið?

  30. HM Says:

    Flott.

Leave a Reply