Patti flipp

Hið ótrúlega, margrómaða, snargrillaða félag Ferðafélagið Patrekur ætlar að leggja land undir fót á morgun. Patrekur hefur ekki ferðast með sjálfum sér út fyrir landsteinanna síðan hann fann sig í Kambódíu um árið með eftirminnilegum hætti (býr Íslendingur hér? sagði skáldið, þ.e. Patrekur).

Nú er kominn tími á að Patrekur haldi utan að nýju til að breiða út fagnaðarerindið og deila með heiminum hlýju sinni, ást og gleði, svo ekki sé minnst á óþrjótandi þekkingu á heimsmálunum, jafnt sem heimamálunum.

Lesendur nær og fjær eru eflaust orðnir spenntir. Jú, Patrekur ætlar í helgarferð til Köben. Annað eins flipp og grill hefur aldrei heyrst. Að líkindum verður Patrekur víða um bæ með fyrirlestur um þessa ferð sína þegar heim kemur, eins og hann er oftast beðinn um eftir að hafa heimsótt fjarlæg lönd.

2 Responses to “Patti flipp”

  1. Patrekur Says:

    Patti minn, hvað með hádegisfyrirlestur niðri á þingi á mið? Ef þau bjóða okkur ekki þá er það örugglega bara því þau hafa gleymt því.

  2. fífa Says:

    hvernig var?

Leave a Reply