Archive for September, 2008

Patti flipp

Wednesday, September 24th, 2008

Hið ótrúlega, margrómaða, snargrillaða félag Ferðafélagið Patrekur ætlar að leggja land undir fót á morgun. Patrekur hefur ekki ferðast með sjálfum sér út fyrir landsteinanna síðan hann fann sig í Kambódíu um árið með eftirminnilegum hætti (býr Íslendingur hér? sagði skáldið, þ.e. Patrekur).

Nú er kominn tími á að Patrekur haldi utan að nýju til að breiða út fagnaðarerindið og deila með heiminum hlýju sinni, ást og gleði, svo ekki sé minnst á óþrjótandi þekkingu á heimsmálunum, jafnt sem heimamálunum.

Lesendur nær og fjær eru eflaust orðnir spenntir. Jú, Patrekur ætlar í helgarferð til Köben. Annað eins flipp og grill hefur aldrei heyrst. Að líkindum verður Patrekur víða um bæ með fyrirlestur um þessa ferð sína þegar heim kemur, eins og hann er oftast beðinn um eftir að hafa heimsótt fjarlæg lönd.

Spurning dagsins

Thursday, September 4th, 2008

Hver sagði og af hvaða tilefni?

„Það er ekki viðunandi að hefðbundin kvennastörf hjá hinu opinbera, sem krefjast langrar menntunar og mikillar sérþekkingar, séu metin til tugþúsunda lægri launa en aðrar fagstéttir, svo ekki sé talað um hefðbundnar karlastéttir sem virðast ætíð tróna á toppnum í launum.“

Fartölva

Wednesday, September 3rd, 2008

Þar sem fartölvan mín eyðilagðist í bílveltu sl. vor neyðist ég nú til að fjárfesta í nýrri. Mig langar að hún sé létt, einföld og PC eins og ég. Allar ábendingar mjög vel þegnar.

***

Annars er þingið farið í gang og ég hæstánægð með að vera að komast aftur í smá rútínu. Stóra verkefnið er svo að lemja saman bókina upp úr MA ritgerðinni en hún kemur út fyrir jól. Jibbíjei.