Leikurinn í dag
Sjáumst á vellinum í dag. Landsleikurinn hefst kl. 16:30 og því kjörið að mæta á hann og svo beint heim að horfa á karlaboltann.
En mikið hefði ég viljað sjá Tyrkina taka þetta í gær. Þeir voru bara svo miklu skemmtilegri. Held með Rússum í kvöld. Eftir að Króatar duttu út ákvað ég að halda með því liði sem ynni í leik Hollendinga og Rússa, enda hefði verið glapræði að velja strax annað liðið og eiga á hættu að upplifa tapleik “sinna manna” tvo daga í röð!
June 26th, 2008 at 8:23 pm
Leikurinn var frábær. Íslensk knattspyrna er á frábæru skriði. Þetta er meiriháttar hvattning fyrir fótboltastelpur landsins.