Reykingar og hrotur
Thursday, January 31st, 2008Ég er fegin að hafa ekki verið á barnum í gær þegar rebelarnir kráareigendur ákváðu að leyfa reykingar innandyra í mótmælaskyni við reykingalöggjöfina. Ekki veit ég hvort skrílslæti fylgdu þessum mótmælum, eins og í ráðhúsinu um daginn, en ég hef lengi sagst vera fylgjandi reykingabanninu einungis vegna eiginhagsmuna. Satt best að segja þekki ég ekki marga sem eru mótfallnir banninu, (þó að andstaða þeirra félaga minna sem á annað borð eru mótfallnir sé mjög hörð). Reyklaust fólk hefur glaðst mjög og jafnframt hluti reykingafólks, ekki síst sósíal smókerarnir.
Hins vegar má vel vera að bjóða ætti upp á sérstök reykingaherbergi í þessum frosthörkum, að því gefnu að þau verði ansi vel lokuð og ég geti ennþá komið heim í hreinum fötum.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að anarkistinn Halla er brjálaður út í anti-smókerinn Höllu í þessu máli.
***
Miklar tilraunir varðandi hrotur fara fram á heimilu mínu. Nú fær hrotudýrið einhvers konar pappír með bragði í munninn á hverju kvöldi en á pakkningunni stendur að eitrið komi í veg fyrir hrotur í 4 af 5 tilfellum.
Nú hafa vaknað spurningar um hvort það þýði:
A. 4 af 5 manneskjum sem hrjóta þegja yfir nóttina
B. Hrotudýr hrjóta aðeins fimmtung af tímanum sem þau áður hrutu.
C. Bragðpappírinn stöðvar fimmtu hverja hrotu.
Ég hef a.m.k. sofið ágætlega undanfarnar tvær nætur en það gæti líka haft með það að gera að hrotudýrið er í betra andlegu jafnvægi eftir að hafa tekið stórar ákvarðanir í lífi sínu varðandi íbúðarkaup. Annar möguleiki væri að óþarflega mikil áfengisdrykkja þriðjudags og langt gufubað gærkvöldsins hafi veitt mér fastari svefn. Það verður spennandi að sjá hvað verður í þessari vísindalegu tilraun.