Archive for July, 2006

Bloggleysi…

Friday, July 28th, 2006

…orsakast af Netleysi. Er ekki komin med Netid heima og bokasafnsnetid hleypir mer ekki inn a kaninkuna. Vita greinilega ekki hvad thetta er mikid og althjodlegt samfelagsafl. Posta faerslur sem thegar hafa verid skrifadar fljotlega.
Eg er hin katasta med herbergid mitt. Voffinn sem byr thar er bara finn og ofnaemid angrar mig litid. Vid erum buin ad fara 2var ut ad skokka, svona bonda doltid. Villtumst i dag. En sem betur for var eg med attavita og vid komumst heil heim.
Flatmateinn heitir Josh og er finn, eg komst ad thvi eftir ad hafa buid med honum i 3 daga ad hann heitir Josh en ekki George, mjog gott. Hann er rolegur og meira inn i sig en Sigurros. Oskop ljufur og vid eigum sofaspjoll um lifid og tilveruna a kvoldin. Liklega mun ein/einn til flytja inn fljotlega en eg kann agaetlega vid thetta svona.
I Sydney er oft i bodi ad taka eigin drykki med a veitingastadi. Thad finnst mer storsnidugt.
Og svo er loksins komin sol. Thad er munur.
Sumarid er timinn, og bradum kemur thad.
Hvert er enska ordid yfir verndarstefnu?
Ja og ef thad eru e-r ahugasamir profarkalesarar tharna uti tha er thad vel thegid! Eg skrifa mjog skemmtileg verkefni, hmm… og eg kann ad stafa James, thott eg se ekki eins klar i ad segja thad.

Rigningin

Friday, July 21st, 2006

Í bíómyndum og hámenningarlegum bókmenntum helst veðufarið oft í far við lund fólks. Þegar sorgin er yfirþyrmandi rignir og þegar ástin bankar upp á er sól og blíða.
Eitthvað hefur rithöfundur minna örlaga ruglast því ég er hin kátasta þrátt fyrir endalausar rigningar. Ekki nóg um vætusamt sumar á Íslandi þá flaug ég yfir hálfan hnöttinn til þess eins að elta rigninguna uppi.
xxx
Ég velti því svolítið fyrir mér, að ef guð er í alvörunni þessi rosa hjónabandstýpa sem trúarbrögð halda fram, þá hlýtur hann að refsa mér á næstunni eftir ræðuna sem ég hélt yfir indverskri kunningjakonu minni hér í fyrrakvöld. Ég var auðvitað búin að sötra smávegis rauðvín og svona, og þurfti endilega að segja henni að foreldrum hennar þætti örugglega vænt um það in the end að hún segði nei við skipulögðu hjónabandi. Hún hefur þegar hafnað manni sem pabbi hennar fann í gegnum e-a hjónabandssíðu en segist alveg til í að giftast manni sem foreldrar hennar finna ef henni líst líka vel á hann. Hún er samt alveg ægilega tvístígandi með þetta allt saman og undir mikilli pressu, enda orðin 24ja ára og er bara eitthvað að dandalast í skóla.
xxx
Við sátum saman í eldhúsinu og ræddum hollívúdd bíómyndir; ég, mexíkósk stelpa, skoskur strákur, indversk stelpa og strákur frá Zimbabwe. Frönsk, svartklædd stelpa stormaði inn, angandi af konuilmvatni, eins og karakter úr bíómynd, þó ekki hollívúdd. Á eftir henni kom spænsk stelpa í háhæluðum hvítum stígvélum með bleikan varalit.
Einmitt þá mundi ég hvers vegna mér finnst svona ógurlega gaman að þvælast til fjarlægra landa.

Ástralskt númer

Friday, July 21st, 2006

Komin með ástralskt númer: +61 0404 635983.
Nota íslenska ekkert á meðan. Svo er komin með skype. Það er nú meiri snilldin. Ég hélt ég ætti að vera lífsreyndari en þetta að vera að prófa skype í fyrsta sinn. Stórsniðugt dót.

First days of disco

Tuesday, July 18th, 2006

Stelpa frá Mexíkó: I was told back home that my mobile wouldn’t work here
Ég: Well, have you got the american system?
S: (glottandi) That must be, we are American…
Ég: öhömm… the US system, I’m sorry
xxx
Ég: Hvernig er það, er ennþá ómögulegt fyrir túrista að fá vegabréfsáritun til Saudi-Arabíu
Strákur frá Saudi-Arabíu (misskildi held ég spurninguna): In Saudi-Arabia people are free, we can say what we want to, that is the truth. I know George Bush has been saying something else, he has been calling us terrorists
Ég (reyni að fá samtalið á vinalegri nótur): Yeah, well, he calls everyone terrorist
S: He’s a motherfucker
Ég: öhömm, yes, how’s that, where do you stay?
xxx
Ástralía er múltíkúltúral. Áðan borðaði ég Nasi Lemak, hinn stórkostlega malasíska morgunverð. Í gær var það sushi og svo padthai.
Flestir í kringum mig eru yngri en ég. Það er eitthvað sem ég er óvön. Skemmtilegt samt. Eyddi deginum með skoskum strák og mexíkóskri stelpu. Þau botnuðu reyndar ekkert í mér þegar ég minntist á að ég hlakkaði til að byrja í skólanum. Ég er búin að gleyma hvernig það er að finnast námið sitt ekki óhóflega spennandi.
Skólinn kann vel að taka á móti útlendingum. Þetta er allt saman mjög smurt. Og allir í góðu skapi, eða þykjast amk. vera það. Líka á skrifstofunum. Stelpan í stúdentakortaafgreiðslunni tók lúftgítarsóló með Green Day milli afgreiðslna. Næstum því eins og nemendaskrá…
xxx
Við getum öll fengið Aussie buddies. Ég var ekki búin að skrá mig. Svo kom kynning frá þeim og þar var á að giska 19 ára gamall strákur að segja okkur hvað það er geggjað að öðlast svona lókal reynslu. Hann hefði sjálfur verið í Perú og gert alls konar grillaða hluti. T.d. keypti hann sér bíl á þúsund dollara og svo kom einhver svakaleg saga um það þegar hann keypti heilt svín og batt það upp á þakið. Svo óku þeir með það heim, 400 km. Þetta fannst honum ægilega grillað. Ég er ekki enn búin að skrá mig í Aussie buddy.

Barkvöld

Tuesday, July 11th, 2006

Í tilefni af brottför minni efni ég til megabarferðar annað kvöld, miðvikudagskvöld.
Eitthvað nýtt og grillað eins og ölstofan, upp úr níu.
Hlakka til að sjá ykkur.

Hengirúm til leigu

Friday, July 7th, 2006

Hengirúm til leigu ásamt íbúð í september, október og nóvember.
Þetta er auðvitað íbúðin mín, í nálægð við Hlemm, eðal staður, eðallíf. Endilega látið vita sem fyrst ef þið hafið áhuga.

8 dagar í brottför og ég hef tekið þá ákvörðun að halda eitt stórt barkvöld í næstu viku til að kveðja.
Annars er fólki auðvitað velkomið að kíkja í heimsókn og horfa á mig pakka en ég sé ekki fram á að hafa mikinn tíma í kaffihús o.þ.h.

Sumarið er loksins komið. Ég ákvað í vor að vera á Íslandi eins lengi og ég gæti til að njóta íslenska sumarsins. Tveir þurrir dagar í júní, naut þeirra.

Hádegismóar

Monday, July 3rd, 2006

Það er líklega engin tilviljun að á leið til vinnu ómaði þetta lag í útvarpinu: “Óbyggðirnar kalla…”