Archive for July, 2005

Auglýst eftir ferðafélaga

Thursday, July 28th, 2005

Ég hef í hyggju að skella mér í Þistilfjörð nk. fimmtudag til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna afmælis vors Steingríms joð.
Þar mun víst vera tjaldað, kveikt í varðeldi og dansað í hlöðu. Á föstudeginum er e-r svaka skemmtileg ganga.
Áhugi minn á þessari ferð er einkum tilkominn vegna þess að ég hef aldrei komið í þennan afkima.

Þér lesandi góður, býðst að slást í för með mér, eða hitta mig þar ef það hentar betur.

Tekið er við umsóknum í kommentakerfinu, í pósti eða í gegnum síma.

Ég ætlað hættað drekká morgun

Thursday, July 28th, 2005

Í gær lýsti ég því yfir að það væri kominn tími á að hætta að drekka á virkum dögum. Ástæðan er sú að ég verð svo fjári léleg í hádegisboltanum ef ég hef fengið mér í glas kvöldið áður, þó ekki sé nema aðeins eitt glas.

En hvað gerir kona þegar hún er “læst úti”, vaktinni lokið og a.m.k. klukkutími þar til dyrnar á heimilinu munu opnast.
Jú, fer fyrst í hjólatúr um Ægissíðuna. Mælir hvað hún er lengi að hjóla fimm kílómetra og kemst að því að hún er sneggri en skugginn. Þegar það er búið er lítið annað að gera en… tjah… fara á barinn?

Wednesday, July 27th, 2005

Ég var byrjuð að skrifa e-r svaka hugleiðingar um hvort kynlíf sé eins og hver annar leikur. Pælingar í framhaldi af forsíðu DV þar eð stendur:

“Heppin áhorfandi fær að sofa hjá þessari stúlku”

Tilvísun er á viðtal við liðið sem er hér á landi til að gleypa rakvélablöð og fara í splitt með 200 aukakíló og Íslendingar borga sig auðvitað kátir inn til að sjá fögnuðinn.

Stúlkan sem um ræðir er víst klámmyndaleikkona og mér skilst að sá áhorfandi sem fái e-n ákveðinn smokk megi eyða hálftíma með henni.

En hugleiðingarnar náðu e-n veginn engri niðurstöðu. Hengu bara í lausu lofti með endanum á að kynlíf getur ekki verið eins og hver annar leikur nema það fari fram á algjörum jafnræðisgrundvelli.
Svo ég köttaði þær bara í burtu og ætla að hugsa þetta aðeins betur.

Verslunarmannahelgin ráðin

Wednesday, July 27th, 2005

Jæja, þá hef ég tekið ákvörðun varðandi verslunarmannahelgina.
Ég stefni ótrauð í Reykjarfjörð nyrðri þar eð ég hyggst ganga á fjöll og vera mikið náttúrubarn.
Reykjarfirði má lýsa sem paradís á jörð. Engir bílar og ekkert símasamband. Bara sundlaug, sjór, selir, kríur, jökull, …
Þar mun líkami minn einnig ná að hreinsast af áfengi og vera alfarið laus við reykjarmökkinn á ölstofunni.

Þið sem ætlið að senda mér brjálæðislega mörg sms verðið að gera það í kvöld og á morgun. Eftir vinnu á morgun verður nebbla lagtíann og stefnan tekin á að eiga náttstað í Drangsnesi. Þar eru víst heitir pottar í fjörunni. Hafi einhver áhuga á að koma með er heldur ekki of seint í rassinn gripið með það.
***
Í næstu viku vonast ég til að drífa í fimmtugsafmæli formannsins í Þistilfirði. Halda síðan sem leið liggur á fiskidaginn á Dalvík. Ef ég dríf ekki þangað er Keine frage alltaf valkostur.

Það stefnir allt í að ratleikurinn verði á menningarnótt. Þetta verður þá menningartengdur ratleikur. Takið alla vega daginn frá…

Ufsilonleysi

Wednesday, July 27th, 2005

Síminn minn er eitthvað aðeins farinn að slappast og 9-takkinn er bilaður. Það þýðir að ég get ekki skrifað ufsiilon í sms. Þannig að þegar þið fáið frá mér sms með orðum á borð við firir og findin þá er ástæða fyrir því.

Verst þykir mér samt að missa moggazetuna út úr smsunum. Hún gerir mig svo gáfukonlega.

Alltof fáar helgar

Monday, July 25th, 2005

Jæja, ætli það verði ekki bara Reykjarfjörður næstu helgi, þótt ég sé enn að velta fyrir mér annarri ferð á Kárahnjúka.

Svo er spurning um Þistilfjörð í vikunni þar á eftir en sú helgi er enn svolítið óráðin. Það gengur illa að finna dagsetningu fyrir ratleik. Mér finnst samt líklegt að það verði helgina e. verslunarmannahelgi eða helgin þar á eftir.
Nema þá að ratleikurinn verði bara sama dag og menningarnótt, mér þykir það vel koma til greina.

Vinsamlega segið álit ykkar á málinu, til þess er kommentakerfið.

Gott þetta

Sunday, July 24th, 2005

Mér sýnist á öllu að ég hafi staðið mig ansi vel í því í gærkvöld að senda sms í vitlaus númer.
Spurning um að læra að lesa nöfnin í fónbúkkinni áður en ég ýti á send?

Opið bréf til kvenna á pinnhælum

Sunday, July 24th, 2005

Ef þú hefur ekki stjórn á skönkum þínum vegna áfengisdrykkju ertu vinsamlega beðin um að vera í flatbotna skóm. Ég er búin að fá nóg af litlum marblettum á ristunum.

Vikulokunum lokið

Sunday, July 24th, 2005

Vikulokin voru langt frá því að vera skemmtileg, svona ískalt mat. 45 mínútna umræður um skipulagsmál borgarinnar geta auðvitað drepið hvern sem er. Þátturinn er engu að síður inni á vefsíðu RÚV svona ef þið eruð haldin sjálfseyðingarhvöt.
Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins mætti ekki en það gerði hins vegar vinur hans sem ég get ekki horft eðlilega á eftir kvöldið á Hverfis daginn fyrir kosningarnar 2003. Hann var með risasogblett á hálsinum og reyndi að sannfæra okkur um að nektardansmeyjar væru alveg vaðandi hamingjusamar upp til hópa.
Í þættinum í gær talaði hann hins vegar um hvað Írakar eru hamingjusamir og að á Kárahnjúkum sé nákvæmlega ekki neitt nema sandur og auðn.
Merkilegast þótti mér hins vegar hvernig bendingar þáttastjórnandans voru hundsaðar. Hann gaf reglulega merki um hver ætti að taka til máls næst en mönnunum sem sátu sitt hvorum megin við mig var alveg slétt sama. Þeir gripu orðið og gögguðu hvor ofan í annan.

Ég hitti mann í teiti í gær sem sagði: Það er ekki oft sem það gerist að ég verð pirraður út í útvarpið en ég hreinlega neyddist til að slökkva. Ég var búinn að fá nóg!

Svo mörg voru þau orð.

Vikulokin

Friday, July 22nd, 2005

Ég verð í vikulokunum hjá Þorfinni Ómars á morgun, laugardag, kl. 11. Þar mun ég gerast hin gáfulegasta og tjá mig um málefni líðandi stundar. Skilst mér að fyrrum formaður Samfylkingarinnar verði í þættinum og jafnvel líka borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.
***
Mikið ógisslega langar mig niðrí bæ akkúrat núna.
Þessi vinna þvælist óþægilega mikið fyrir mér í lífinu.