Fökking fokk
Sunday, May 29th, 2005Ég er búin að fá nóg.
Nóg af því að eiga engin fökkings föt. Undanfarin ár hef ég reglulega farið í búðir til að kaupa buxur eða smart boli. Ég kem alltaf heim með plein bómullarbol (helst hvítan eða svartan) og kannski eina flís- eða hettupeysu. Eða jafnvel pils sem ég nenni aldrei að ganga í.
Það er ekki það sem mig vantar!
Til að bæta úr þessu ákvað ég að nota klukkutíma matarhléið í að vafra um einn hræðilegasta stað á Íslandi, Kringluna, og gá hvort ég fyndi mér ekki eitthvað þægilegt og litríkt fyrir sumarið. Ég náði að fara í eina búð og þá var búið að loka.
Eina sem ég komst nálægt því að kaupa var skærappelsínugult pils. Kannski sæki ég það á morgun.
Getur einhver sagt mér hvar kona á að versla?
Mig langar í jakkaföt.